fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fréttir

Gulli Arnar þurfti að leggjast inn á spítala eftir slæma sýkingu í kjölfar Covid-19

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 30. janúar 2022 20:21

Gulli Arnar Mynd: Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gunnlaugur Arnar Ingason, sem er alla jafnan kallaður Gulli Arnar, er óðum að skapa sér nafn sem fremsti bakari og konditor landsins en hann rekur afar vinsælt handverksbakarí undir eigin nafni í Flatahrauni í Hafnarfirði

Hann smitaðist eins og svo margir af Covid-19 um miðjan janúar og lauk einangrun í síðustu viku. Í byrjun síðustu viku fékk hann hins vegar slæma sýkingu í kjölfar veikindanna.

Sýkingin lýsti sér þannig að hún lagðist illa á slímhúð og þá sérstaklega á munn, kok og háls sem gerði mér erfitt fyrir að nærast og taka viðeigandi lyf. Mér gekk illa að vinna á henni og á fimmtudaginn var ég lagður inná Landspítala þar sem batanum gengur betur og er ég búinn að liggja hér síðan þá en stefnir sem betur fer í heimkomu á morgun,“ skrifar Gulli Arnar í færslu á Instagram-síðu sína.

Hann segist sakna bakarísins óendanlega mikið en hann hafi fengið tvö mjög skýr fyrirmæli frá læknum. Að fara rólega af stað og að það ekki sé möguleiki fyrir hann að vinna 10-16 tíma á dag, alla daga vikunnar, eins og hann hefur gert undanfarið ár.

„Ég ætla að fylgja þessum fyrirmælum og taka því rólega í vikunni sem þýðir örlítið meiri seinkun í kökudeildinni, þið afsakið,“ skrifar bakarinn.

Færsla Gulla Arnar á Instagram:

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Gunnlaugur Ingason (@gulliarnar)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

„Við vorum bara litlir hræddir strákar“

„Við vorum bara litlir hræddir strákar“
Fréttir
Í gær

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu
Fréttir
Í gær

Hundur Margrétar lifir enn – „Mér er haldið í hengingaról“

Hundur Margrétar lifir enn – „Mér er haldið í hengingaról“
Fréttir
Í gær

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin
Fréttir
Í gær

Morðið á Rob Reiner og eiginkonu hans – „Fjölskyldumeðlimur“ yfirheyrður

Morðið á Rob Reiner og eiginkonu hans – „Fjölskyldumeðlimur“ yfirheyrður
Fréttir
Í gær

Þegar lífið fer á bið á „bestu árum ævinnar“

Þegar lífið fer á bið á „bestu árum ævinnar“
Fréttir
Í gær

„Berklar eyddu vonum fólks, eyðilögðu tilhugalíf og ungar fjölskyldur syrgðu“

„Berklar eyddu vonum fólks, eyðilögðu tilhugalíf og ungar fjölskyldur syrgðu“