fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
Fréttir

Hólmfríður segir að byltingin sé hafin – „Gerendur mega vara sig“

Máni Snær Þorláksson
Föstudaginn 7. janúar 2022 12:28

Hólmfríður Árnadóttir - Mynd: Vinstri græn

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það er mikilvægt að standa með þolendum. Það er jafnréttismál og kvenréttindabarátta í hnotskurn þótt vissulega séu þolendur af öllum kynjum.“

Svona hefst pistill sem Hólmfríður Árnadóttir menntunarfræðingur skrifar. Pistillinn birtist á Vísi í gærkvöldi eftir stormasaman dag sem einkenndist af því að 5 karlmenn stigu ýmist til hliðar eða fóru í frí í kjölfar frásagnar Vítalíu Lazareva um ofbeldi af þeirra hálfu.

Hólmfríður ræðir í pistlinum um hvernig fólk á að standa með þolendum. Hún segir til að mynda að hvert einasta fyrirtæki og hver einasta stofnun ættu að gera áætlun og vera með skýra verkferla um til hvaða aðgerða er gripið ef upp kemur kvörtun, ábending eða rökstuddur grunur um að einelti, kynferðisleg áreitni, kynbundið áreitni eða ofbeldi hafi átt eða eigi sér stað.

„Það verða alltaf að fylgja aðgerðir þegar slík mál koma upp og þær aðgerðir að vera skýrar og skilvirkar. Lögreglu ber að upplýsa um refsivert athæfi og alltaf skal þolandi njóta vafans, alltaf,“ segir hún.

Þá segir Hólmfríður að um byltingu sé að ræða. „Byltingin er hafin, gerendur mega vara sig. Ég mun alltaf trúa og standa með þolendum. Ég mun alltaf og sannarlega segja mína skoðun um málefni þolenda nú sem og hingað til. Í slíkum málum er nefnilega ekki hægt að vera hlutlaus, það er ekki hægt að sitja hjá og gera ekki neitt,“ segir hún.

„Það er afar erfitt að horfa upp á þær þungu byrðar sem þolendur eru látnir sitja uppi með. Við þurfum að tryggja miklu betri réttarstöðu þeirra með lagabreytingum, markvissum aðgerðum og um leið efla lögregluna til að taka á þessum málum af mannúð, virðingu og vandvirkni. Það á enginn að þurfa að opinbera sín viðkvæmustu mál á samfélagsmiðlum til að ná fram réttlæti og málsumfjöllun. Að samfélagið ýti undir slíkt og það sé það eina sem þolendur sjá í stöðunni er fáránlegt og engri manneskju bjóðandi.“

Að lokum segir Hólmfríður að nú sé tími þolenda runninn upp. „Nú er kominn tími þolenda, að við virðum þeirra upplifanir, fordæmum ofbeldi og það óréttlæti sem þolendur hafa búið við árum og öldum saman með aðgerðum,“ segir hún.

„Þolendur, ég veit þið eruð þreytt en umfram allt ekki þagna. Við erum ótalmörg sem stöndum með ykkur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Formaður húsfélags í Vesturbæ fær ítrekað fólk, trúnaðarbréf og pizzur heim sem fara eiga á LSH – Ástæðan er einföld og lausnin líka

Formaður húsfélags í Vesturbæ fær ítrekað fólk, trúnaðarbréf og pizzur heim sem fara eiga á LSH – Ástæðan er einföld og lausnin líka
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Skólamál Reykjanesbæjar langt fram úr fjárhagsáætlun

Skólamál Reykjanesbæjar langt fram úr fjárhagsáætlun
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Verk og vit hefst á morgun

Verk og vit hefst á morgun
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Eigandi RE/MAX sakfelldur fyrir markaðsmisnotkun

Eigandi RE/MAX sakfelldur fyrir markaðsmisnotkun
Fréttir
Í gær

Stýrivextir hækka um 0,25%

Stýrivextir hækka um 0,25%
Fréttir
Í gær

Vilhjálmur áhyggjufullur: „Fyrir þann hóp myndi gjaldtaka hafa verulega íþyngjandi áhrif“

Vilhjálmur áhyggjufullur: „Fyrir þann hóp myndi gjaldtaka hafa verulega íþyngjandi áhrif“