fbpx
Sunnudagur 08.júní 2025
Fréttir

Sindri spenntur fyrir meiðyrðamálinu gegn Ingólfi – „Við munum afhjúpa svo mikinn skít!“

Máni Snær Þorláksson
Miðvikudaginn 5. janúar 2022 15:45

Myndin er samsett.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrsta meiðyrðamál tónlistarmannsins Ingólfs Þórarinssonar, sem er hvað þekktastur sem Ingó veðurguð, átti að vera tekið fyrir í héraðsdómi næstkomandi föstudag en DV greindi frá því fyrr í dag að fyrirtökunni hefur verið frestað vegna sóttkvíar lögmanns í málinu.

Málið sem um ræðir er höfðað gegn Sindra Þór Hilmari-Sigríðarsyni, markaðsstjóra hjá Tjarnarbíó og aktívista, og er byggt á kröfubréfi sem Vilhjálmur Vilhjálmsson lögmaður sendi í júlí en Vilhjálmur var þá lögmaður Ingólfs.

Auður Björg Jónsdóttir, núverandi lögmaður Ingólfs, segir í samtali við RÚV, sem greindi fyrst frá, að ekki sé búið að þingfesta fleiri stefnur. Sindri var ekki sá eini sem fékk kröfubréf frá Ingólfi, alls voru kröfubréfin 5 og samtals var krafist 14 milljóna íslenskra króna.

Sindri hefur nú tjáð sig í kjölfar fréttaflutnings um fyrirtökuna en miðað við færslu sem hann birtir á samfélagsmiðlinum Twitter þá er hann spenntur fyrir því að málið fari fyrir dóm.

„Strákurinn er á leið í réttarsal. Þetta verður aktívismi. Þetta verður pönk. Við munum afhjúpa svo mikinn skít! Djöfull hlakka ég til,“ segir Sindri í færslunni sem um ræðir.

Ólöf Tara Harðardóttir, meðlimur Öfga og einkaþjálfari, sem fékk einnig kröfubréf frá Ingólfi, skrifar athugasemd við færslu Sindra og tekur í svipaðann streng og hann. „Get ekki beðið!!“ segir Ólöf.

Uppfært: 16:35:

Sindri hefur nú gefið út yfirlýsingu vegna málsins en hana sjá lesa í heild sinni hér fyrir neðan.

„Það sem þarf að vera alveg á hreinu í þessu máli er að ég er ekki að stíga fram og tjá mig gagngert til að sverta æru Ingólfs Þórarinssonar. Ég stíg fram til að benda á hvernig fullorðnir menn, líkt og Ingólfur, nýta sér brotalöm í okkar réttarkerfi til að sænga hjá börnum, án afleiðinga fyrir þá en oft með skelfilegum afleiðingum fyrir börnin. Allt sem ég hef sagt um Ingólf og hans mál kemur í kjölfar holskeflu ummæla á samfélagsmiðlum, hvar fólk lýsir reynslu sinni af manninum. Mestmegnis opinber ummæli, skrifuð undir nafni.

Frá því málið komst í hámæli og Ingólfur tekur þá ákvörðun að reyna með kröfubréfum og stefnum að þagga niður í þeim sem hafa hátt hefur fjöldi kvenna leitað til lögmanns míns með sínar sögur af Ingólfi. Allt frá þolendum yfir í starfsfólk félagsmiðstöðva. Flestar vilja eingöngu styrkja mál okkar og koma í veg fyrir að Ingólfi takist að þagga þetta niður. Einhverjar vilja einnig láta skoða sín mál og athuga hvort grundvöllur sé fyrir að taka þau lengra innan réttarkerfisins.

Saman munum við mæta þessari stefnu Ingólfs af hörku og sýna fram á að ég hafi hvergi sakað manninn um refsiverðan verknað o.þ.a.l. hvergi gengið fram með ærumeiðandi ummælum. Allt sem ég sagði byggði á ummælum þolenda og vitna og svo hitt, sem er það fáránlegasta, á Íslandi er nefnilega fullkomlega löglegt fyrir rígfullorðna menn að sænga hjá barnungum stúlkum svo lengi sem þær hafa náð 15 ára aldri. Það þrátt fyrir algjöran valdamun einstaklinganna og rannsóknir sem sýna fram á verulega skaðsemi fyrir börnin.

Lögin og réttarkerfið eru mannanna verk sem þróast og taka breytingum eftir því sem við lærum og vitum meira. Það er einlæg von mín að þetta mál verði skref í átt að réttarumbótum fyrir þau börn sem finna sig í sigti fullorðinna manna með kynferðislegar ætlanir.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kepa fer til Arsenal
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ingibjörg Sólrún fékk nóg af Írisi og eyddi henni af vinalistanum

Ingibjörg Sólrún fékk nóg af Írisi og eyddi henni af vinalistanum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dæmdur nauðgari fær tækifæri hjá Hæstarétti

Dæmdur nauðgari fær tækifæri hjá Hæstarétti
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hvetur Trump til að hirða SpaceX af Elon Musk eftir atburði gærkvöldsins

Hvetur Trump til að hirða SpaceX af Elon Musk eftir atburði gærkvöldsins
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lætur Egil heyra það: „Þú ert hetja að ráðast gegn honum þegar hann er farinn”

Lætur Egil heyra það: „Þú ert hetja að ráðast gegn honum þegar hann er farinn”
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sæþór heldur naumlega velli hjá Sósíalistum – Ályktun ungra sósíalista um að hann skyldi stíga til hliðar olli usla

Sæþór heldur naumlega velli hjá Sósíalistum – Ályktun ungra sósíalista um að hann skyldi stíga til hliðar olli usla
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þórunn greip inn í þegar læti urðu á Alþingi – „Forsætisráðherra er með orðið“

Þórunn greip inn í þegar læti urðu á Alþingi – „Forsætisráðherra er með orðið“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þinghald lokað í máli Yms – Banaði móður sinni með 22 stungum

Þinghald lokað í máli Yms – Banaði móður sinni með 22 stungum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Mörg hús fyrir hælisleitendur standa ónotuð – „Sóun á almannafé skattgreiðenda“

Mörg hús fyrir hælisleitendur standa ónotuð – „Sóun á almannafé skattgreiðenda“