Aldís Ósk Björnsdóttir er 29 ára og býr í Grafarvoginum. Rafskútu hennar var stolið á dögunum en hana notar hún til að komast á milli staða án þess að vera upp á aðra komin. Áður en hún keypti sér skútuna nýtti hún sér ferðaþjónustu fatlaðra meira en vildi fá frelsi við að komast á milli staða.
Á laugardaginn 26. júní skrapp hún í Hagkaup í Spönginni en þegar verslunarferðinni var lokið var hjólið horfið. Brynhildur Diego Kolbeinsdóttir, systir Aldísar, skrifaði færslu á Facebook-síðu sína í dag vegna málsins en þær systurnar gáfu DV góðfúslegt leyfi til að endurbirta hana. Aldís er verulega leið vegna þjófnaðarins og skilur ekki hver gæti gert svona.
„Við höfum kært þetta til lögreglu og ætlum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að finna hlaupahjólið. Ef sá eða sú sem tók hjólið hinsvegar sér að sér og vill skila hjólinu þá má hafa samband við mig í 868-0635, ég lofa trúnaði,“ skrifar Brynhildur í færslunni.
Skulir þú vita hvar hjólið er, endilega hafðu samband við Brynhildi svo að það finnist sem fyrst.