fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Pizzustaður Kickstarter-bræðra virðist hafa lagt upp laupana – Lok, lok og læs á Slæs

Björn Þorfinnsson
Þriðjudaginn 22. júní 2021 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pizzustaðurinn Slæs, sem var í eigu bræðranna Einars og Ágústs Arnar Ágústssonar, virðist hafa lagt upp laupana. DV greindi frá því um miðjan janúar, líkt og aðrir fjölmiðlar, að bræðurnir hefðu farið af stað með flatbökuævintýri sitt í húsnæði við Iðnbúð 2 í Garðabæ.  Athygli vakti á sínum tíma að engar upplýsingar voru um eignarhalds staðarins né ábyrgðarmenn hans á heimasíðu staðarins en ljósi var varpað á hverjir stæðu á bak við staðinn þegar að í ljós kom að félag í eigu bræðranna, Megn ehf, væri skráð fyrir léninu slaes.is.

Eins og áður segir þá hófst rekstur staðarins um miðjan janúar en hann virðist aldrei hafa komist á flug. Nágrannar sem DV ræddi við segja að fljótlega hafi opnunartími staðarins orðið mjög stopull og ekkert lífsmark hafi verið í húsnæðinu um talsvert skeið. Þá virðist pöntunarsími staðarins ekki vera tengdur.

Bræðurnir Einar og Ágúst hafa verið kallaðir „Kickstarter-bræðurnir“ og eru einna þekktastir fyrir aðkomu sinni að yfirtöku á félagi Zuista á Íslandi og viðamiklu fjársvikamáli á síðunni Kickstarter.

Einar, eldri bróðirinn, hlaut í héraðsdómi árið 2017 þriggja ára og níu mánaða fangelsisdóm fyrir fjársvik sem hann framdi með því að blekkja nokkra einstaklinga til þess að afhenda sér 74 milljónir króna. Í dómnum, sem staðfestur var af Landsrétti, segir að brot Einars hafi verið úthugsuð, brotavilji Einars einbeittur og þau staðið yfir í langan tíma. Þá sagði þar að hann ætti sér engar málsbætur.

Fengu þeir þá meðal annars styrk frá Tækniþróunarsjóði til þess að þróa áfram sólarselluhugmyndir svipuðum og þeim sem þeir seldu á Kickstarter. Þrátt fyrir milljónir í styrki og fjárfestingar bólaði aldrei neitt á sólarsellu framleiðslunni. Raunar sagði Stundin að hugmynd bræðranna bryti í bága við náttúrulögmál og framleiðslan væri þar með ómöguleg.

Aðkoma bræðranna að Zuistahreyfingunni var einnig mikið til umræðu á liðnum árum. Munu bræðurnir hafa tekið félagið yfir með loforðum um að trúfélagsgjaldið sem rennur úr ríkissjóði yrði greitt til skráðra meðlima að frádregnu umsýslugjaldi nokkurs konar. Trúfélagið sótti þá um að fá lóð úthlutaðri frá borginni undir musteri. Ekkert varð af musterinu og skráðir meðlimir fengu aldrei neitt greitt til sín.

Ríkið greiddi út tug milljóna til trúfélagsins, en hélt eftir öðrum greiðslum. Bræðurnir höfðuðu þá mál til þess að fá þær greiðslur út en kröfu þeirra var hafnað.

Zuistaflétta bræðranna er nú fyrir dómi, en ákæra yfir þeim var birt seint á síðasta ári. Þeir neituðu báðir sök við þingfestingu málsins í desember. Í ákærunni sem DV hefur undir höndum kemur fram að aðeins rúm milljón sé eftir á reikningum félagsins af um 85 milljóna greiðslum ríkisins. Héraðssaksóknari krefst þess að gerðar verða upptækar um 50 milljónir sem sitja á reikningum bræðranna og á félögum þeim tengdum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi