Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamaður Vísis, segir óhugnanlegt að hugsa til þess að menn séu sakaðir um tiltekna afstöðu til mála út frá því sem þeir „læka“ á samfélagsmiðlum. Dæmi um þetta sé gagnrýni í garð forseta Hæstaréttar, Benedikts Bogasonar og Hæstaréttardómarans Karls Axelssonar sem átti sér stað í gær.
Jakob mætti, líkt og í hverri viku, í Bítið á Bylgjunni í morgun og þar sagðist hann hafa furðað sig á umræðum sem áttu sér stað í kjölfar þess að Helgi Jóhannesson, nýhættur yfirlögfræðingur Landsvirkjunar, birti afsökunarbeiðni á Facebook út af háttsemi sinni í garð kvenna.
„Það var mál sem kom upp í gær sem að mér finnst einkennilegt. Það er með hann vin ykkar Helga Jóh, yfirlögmann Landsvirkjunar sem þurfti að stíga til hliðar eða sté til hliðar, ég veit ekki hvernig það nú verkaðist, eftir að hann var sakaður um kynferðislega áreitni.“
Jakob benti á að þeim fréttum hafi fylgt upprifjun á metoo-sögu um unga konu sem hafi hrökklast frá störfum á lögmannsstofunni LEX eftir áreitni Helga. Slík áreitni sé að sjálfsögðu óafsakanleg.
En afleitt mál frá þeirri umræðu hafi verið til umfjöllunar í gær og varðað Hæstaréttardómarana Benedikt Bogason og Karl Axelsson sem Jakob segir að sé óhugnanlegt.
„Nema það, að hann biðst afsökunar, Helgi Jóh, á þessu. Á sínum Facebook-vegg og það hlýtur nú kannski að teljast jákvætt, myndi maður halda. En nei þá verður allt brjálað vegna þess að Benedikt Bogason- forseti Hæstaréttar og Karl Axelsson, þeir setja „læk“ – þumalinn upp – við afsökunarbeiðninni og þá heitir það allt í einu orðið gerendameðvirkni. Mér finnst þetta bara svo óhugnanlegt. Þetta bókhald á lækum – við lækum eitt og annað af ýmsum ástæðum strákar. Stundum birta menn pistla og ég er ósammála efni pistilsins í einu og sammála honum í öðru.“
Jakob segir að þetta hafi minnt hann á annað mál sem átti sér stað fyrr á árinu.
„Þegar tónlistarmaðurinn Auður – Auðunn Lúthersson – birtir afsökunarbeiðni, held ég á Instagram frekar en á öðrum samfélagsmiðlinum, og þeir sem settu læk við það, og mér er kunnugt um það, voru bara hreinlega ofsóttir vegna þess að það á bara að útiloka þessa menn algjörlega. Og ég bara, allt sem maður hefur lært um gagnrýna hugsun þetta æpir á mann. Það er eitthvað bogið við þetta.“
Jakob furðar sig ennfremur á því að ekki sé lengur hægt að gagnrýna einstaka þætti þeirrar umræðu sem nú á sér stað um kynferðisbrot án þess að vera sakaður um gerendameðvirkni og bendir á að hann viti ekki til þess að nokkur maður hafi einhvern tímann stigið fram og lýst því að hann sé fylgjandi nauðgunum.
„