fbpx
Fimmtudagur 06.nóvember 2025
Fréttir

Lausahald katta bannað á Akureyri – „Við hörmum þá niðurstöðu bæjarstjórnar“

Máni Snær Þorláksson
Miðvikudaginn 3. nóvember 2021 13:00

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lausaganga katta verður bönnuð á Akureyri frá 1. janúar 2025 en meirihluti bæjarstjórnar samþykkti tillögu þess efnis í gær eftir langar umræður. Staðarmiðillinn Akureyri.net greindi fyrst frá.

Bæjarfulltrúinn Eva Hrund Einarsdóttir var málshefjandi og lagði fram tillögu um að endurskoða samþykktir um kattahald á Akureyri. Eva kallaði tillöguna „málamiðlunartillögu“ en þegar umræður hófust komst í ljós að meirihluti bæjarstjórnarinnar vildi ganga enn lengra en tillaga Evu gerði ráð fyrir.

Eva lagði því fram nýja tillögu um málið. „Bæjarstjórn samþykkir að endurskoða samþykktir um kattahald í Akureyrarkaupstað. Verður þá með nýjum tillögum lausaganga katta ekki heimil en sett svokallað sólarlagsákvæði inn sem er þrjú ár. Lausaganga katta verður þá ekki heimil frá ársbyrjun 2025. Þá verði einnig settur umtalsverður meiri kraftur að í að framfylgja þeim samþykktum með sérstakri áherslu á ábyrgð eigenda, skráningarskyldu og fræðslu,“ segir í tillögunni sem var samþykkt af meirihlutanum.

Bæjarfulltrúarnir Hilda Jana Gísladóttir, Sóley Bjarkar Stefánsdóttir, Heimir Haraldsson voru öll á móti tillöguni og greiddu atkvæði gegn henni ásamt Höllu Björk Reynisdóttur, forseta bæjarstjórnar. Hildur lagði fram bókun vegna málsins fyrir sína hönd og fyrir hönd Sóleyjar og Heimis.

„Við hörmum þá niðurstöðu bæjarstjórnar að banna alfarið frjálsa útivist hjá kisum. Bæjarfélagið hefur lítið sem ekkert gert til að framfylgja þeim samþykktum sem nú þegar eru í gildi né látið á það reyna að breyta samþykktum í þá veru að sem flestir geti vel við unað,“ segir í bókuninni.

„Hægt hefði verið að stíga það skref að heimila ekki útivistina að næturlagi og yfir varptíma fugla. Mikilvægara hefði verið að leita lausna en að grípa til banns. Fyrst grípa á hins vegar til banns hefði verið eðlilegra að setja sólarlagsákvæði, þannig að þær kisur sem nú þegar eru útikisur fái að vera það út sinn líftíma.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

„Við sigldum í burtu, en fórum aldrei frá Flateyri“

„Við sigldum í burtu, en fórum aldrei frá Flateyri“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

„Þetta var svona eins og Jesúbarnið“

„Þetta var svona eins og Jesúbarnið“
Fréttir
Í gær

Gestur áhyggjufullur: Gæti reynst ástvinum hreinasta martröð

Gestur áhyggjufullur: Gæti reynst ástvinum hreinasta martröð
Fréttir
Í gær

Lögreglan varar við kræfum vasaþjófum – Fylgjast með fólki sem notar hraðbanka

Lögreglan varar við kræfum vasaþjófum – Fylgjast með fólki sem notar hraðbanka
Fréttir
Í gær

Borðvél sem þýðir bók á örfáum sekúndum

Borðvél sem þýðir bók á örfáum sekúndum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Organista Glerárkirkju sagt upp störfum – „Ég var þrjóskur miðaldra karlmaður“

Organista Glerárkirkju sagt upp störfum – „Ég var þrjóskur miðaldra karlmaður“