fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fréttir

Morðingi Söruh Everard dæmdur í lífstíðarfangelsi – brenndi lík hennar eftir ódæðið

Björn Þorfinnsson
Fimmtudaginn 30. september 2021 14:00

Sarah Everard

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglumaðurinn Wayne Couzens var fyrr í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi í Bretlandi fyrir morðið á hinni 33 ára gömlu Söruh Everard í mars á þessu ári. Málið hefur vakið upp mikinn óhug ytra og varpað ljósi á það öryggisleysi sem konur búa við.
Couzens hafði játað á sig morðið en réttarhöld yfir honum hafa staðið yfir undanfarna tvo daga. Sarah Everard fannst látinn þann 10. mars síðastliðinn en þá var vika liðin síðan hún hafði horfið á leið heim til sín í Lundúnum.
Það sem hefur vakið sérstakan óhug almennings er sú staðreynd að Couzens misnotaði stöðu sína sem lögreglumaður til þess að nema Everard á brott.

Þannig sagði Tom Little, saksóknari í málinu, að hægt væri að lýsa níðingsverki Couzens með fimm orðum: „Svik, mannrán, nauðgun, kyrking, eldur.“

Í umfjöllun Pressunnar um málið kemur fram Everard hafði verið í matarboði hjá vini sínum og var á leið heim til sín í Lundúnum.  Strangar sóttvarnaaðgerðir voru í gildi í landinu vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Hún var ein á ferð og var með heyrnartól á höfðinu.

Þegar hún átti um einn kílómetra eftir ófarinn heim gekk Couzens upp að henni en hann var óeinkennisklæddur. Þá var klukkan um 21.30. Hann sýndi henni lögregluskilríki sín og handtók hana síðan. Með því braut hann að öllum líkindum  sóttvarnareglur með því að nota þær sem falskt yfirvarp fyrir handtöku. Samkvæmt sóttvarnareglum mátti fólk ekki umgangast margt fólk utan heimilis þess og því var hugsanlega ekki erfitt fyrir Couzens að sannfæra Everard um að hún hefði brotið sóttvarnareglur. Hann setti því næst handjárn á Everard og setti hana inn í bíl sinn.

Vitni sem sá hvað fór fram sagðist hafa talið að Couzens væri óeinkennisklæddur lögreglumaður sem væri að handtaka konu sem hefði brotið af sér. Vitnið, kona, sagði að Everard hafi ekki streist á móti. Þessi ólögmæta handtaka náðist á upptökur nokkurra eftirlitsmyndavéla.

Þegar Couzens hafði sett Everard inn í bíl sinn ók hann með hana að afskekktu landsvæði norðan við Dover í suðvesturhluta landsins. Þar nauðgaði hann henni og myrti síðan.

Couzens var handtekinn 9. mars og daginn eftir fannst lík Everard. Blóð úr henni fannst í bíl Couzens. Sæði úr honum fannst einnig í aftursæti bifreiðarinnar.

Couzens sagði síðar að hann hefði kyrkt Everard með beltinu sínu og passar sú frásögn hans við niðurstöðu krufningar. Þegar hún var látin brenndi hann lík hennar í skóglendi.

Í gær kom fram fyrir dómi að þann 7. mars fór Couzens með eiginkonu sína og tvö börn í fjölskylduferð í skóginn þar sem hann hafði kveikt í líki Everard nokkrum dögum áður. Tom Little sagði að hann hefði leyft börnunum að leika sér „mjög nærri þeim stað þar sem hann hafði kastað líki Everard“.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Egill varar valkyrjurnar við – „Held að ríkisstjórnin megi vara sig“

Egill varar valkyrjurnar við – „Held að ríkisstjórnin megi vara sig“
Fréttir
Í gær

Dómur fallinn yfir Sigurði Fannari – Varð dóttur sinni að bana á Krýsuvíkurvegi

Dómur fallinn yfir Sigurði Fannari – Varð dóttur sinni að bana á Krýsuvíkurvegi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bakkaði bílnum á konu sem fótbrotnaði á báðum

Bakkaði bílnum á konu sem fótbrotnaði á báðum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir erfitt að átta sig á átökunum við Íran – „Fyrir Bandaríkin er þetta slæmt mál“

Segir erfitt að átta sig á átökunum við Íran – „Fyrir Bandaríkin er þetta slæmt mál“