Lyfjastofnun og embætti landlæknis brýna fyrir landsmönnum að borða ekki bólukremið Soolantra (iverkmektín) því það geti valdið alvarlegum aukaverkunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lyfjastofun.
Lyfjastofnun og embætti landlæknis segjast hafa áreiðanlegar upplýsingar um að sjúklingar á Íslandi með COVID-19 hafi tekið lyfið um munn og rökstuddan grun um að það geti haft alvarlegar aukaverkanir í för með sér.
„Aukaverkanir segm geta hlotist af inntöku kremsins eða ofskömmumt ivermektíns geta verið; útbrot, bjúgur, höfuðverkur, sundl, þróttleysi, ógleði, uppköst og niðurgangur. Fleiri aukaverkanir sem tilkynnt hefur verið um eru: krampar, ósamhæfðar vöðvahreyfingar, mæði, kviðverkir, náladofi og ofsakláði.“
Soolantra á aðeins að nota á andlitshúð en ekki aðra líkamshluta og lyfið er alls ekki ætlað til inntöku. Lyfið er ætlað til meðferðar við bólum og þrymlum sem fylgja húðsjúkdomnum rósroða.
Vegna ástandsins hefur Lyfjastofnun ákveðið að Z-merkja lyfið og þar með takmarka ávísun þess a.m.k. tímabundið við sérfræðinga í húðsjúkdómum.