Samtals eru 14 manns í hópnum, bandið sjálft telur sex einstaklinga. Eftir standa átta. Einn af þeim er nú veikur af Covid-19.
Eins og fyrr sagði er gengið allt í sóttkví og samkvæmt frétt Vísis um málið í gærkvöldi er bandið þeirra á meðal. Sýni voru tekin úr öllum í hópnum á sunnudag þegar smitið kom upp og reyndust þau öll neikvæð í gærkvöld. Annar umgangur af sýnum verður svo tekinn á miðvikudag og fimmtudag og reynist staðan óbreytt munu Daði Freyr og Gagnamagnið spila fyrir dómara á miðvikudagskvöld og svo í beinni útsendingu í undanúrslitum á fimmtudaginn. Hópurinn er því áfram í sóttkví til miðvikudags og aðrir jafnvel fram á fimmtudag. Herma heimildir DV að dvölin leggist misþungt á einstaklinga í hópnum. Eins og frægt er er Rotterdam ein mesta hjólreiðaborg heims og skyldudvöl á hótelherbergi með útsýni yfir hjólandi Hollendinga því vafalaust krefjandi upplifun fyrir Gísla Martein Baldursson, hvers hjólreiðaást er landsmönnum öllum kunn.
Áfram fá Júróvisjónaðdáendur að bíða með öndina í hálsinum eftir frekari fréttum frá Rotterdam.
DV greindi svo frá því í gær að bandið hefði allt verið sprautað með Covid-19 bóluefni Janssen fyrir um það bil tveim vikum en þau fengu sérstaka undanþágu hjá Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni. Sagði Þórólfur í samtali við blaðamann DV í gær að beiðni um að koma Júró-hópnum framfyrir forgangsröð sem lögfest var með reglugerð ráðherra hafi komið frá RÚV. „Ég vona að það hafi verið rétt ákvörðun,“ sagði hann jafnframt. Hópurinn fékk Janssen bóluefnið 5. maí. Ellefu dögum síðar var einn úr hópnum kominn með Covid. Aðspurður um hvernig á þessu stæði sagði Þórólfur: „Öll bóluefni eru þannig að það tekur 2-3 vikur að ná virkni en beiðnin kom ekki fyrr en þetta þannig að …“
Þórólfur viðurkenndi þá að undanþágur sem þessi væru almennt ekki veittar. Sagði Þórólfur í viðtali við aðra fjölmiðla um sama mál að undanþágan hafi meðal annars verið veitt þar sem umræddur hópur væri á leið til útlanda „á vegum íslenska ríkisins þar sem er mikil útbreiðsla.“ Vöktu þau orð bæði athygli og úlfúð á samfélagsmiðlum. Anton Sveinn Mckee, afreksmaður í sundi og Ólympíufari, vísaði til fréttarinnar og sagði hana eins og að fá blauta tusku í andlitið. „Hvort sem leikarnir verða eða ekki, þá þarf að undirbúa sig og ferðast á lágmarksmót. Einn afreksíþróttamaður missti af mikilvægum stigum því hann fékk Covid á keppni erlendis,“ skrifaði hann jafnframt. „Ekki sama hvort það sé Jón eða séra Jón.“ Þá má nefna að allflestir flutningsskyldir starfsmenn íslensku utanríkisþjónustunnar voru ekki bólusettir, þrátt fyrir að vera „á vegum íslenska ríkisins þar sem er mikil útbreiðsla.“
Eins og við var að búast hefur upplýsingaóreiða RUV um málið kallað fram viðbrögð á samfélagsmiðlum. Velti Jakob Bjarnar, blaðamaður Vísis, því meðal annarra í gær hvort þöggunarviðbrögð hópsins væru tilkomin vegna þess að sá smitaði átti kannski ekkert að vera þar sem hann er. „Ég ætla að grísa á að þetta sé annað hvort Stefán Eiríksson eða Logi Bergmann,“ velti Jakob fyrir sér á Facebook í gærkvöldi. Egill Helgason afsannaði það reyndar fljótt þegar hann sagðist hafa séð Stefán á „rafskottu“ í vestur á Nesvegi í fyrrakvöld.
Guðmundur Franklín Jónsson, ekki-forseti þrátt fyrir góða tilraun, blandar sér svo í umræðuna: „Hrikalega spennandi, eiginlega jafn mikið og hvort við lendum ekki í fyrsta sæti skv. veðbönkum. Svo er alltaf spurning með kostnaðinn af svona, ég sé að þau hafa 2 nýja gítara…en ganga í sömu bolunum…sem er soldið RÚV.“
Hvað sem vangaveltum þeirra Jakobs, Guðmundar, Egils og fleiri líður, er ljóst að spennan fyrir keppninni er mikil og má búast við að margir hér heima þenji nýútvíkkuð sóttvarnarviðmið til hins ítrasta á fimmtudagskvöld þegar bandið stígur á stokk í beinni, reynast þau „negatief“ á ný.