Upplýsingar um ný smit af kórónuveirunni í dag liggja ekki fyrir og talan er því enn í 45 smituðum. Fjögur af þessum smitum eru innanlandssmit. Enn eru öll smitin rakin til skíðasvæða í Ölpunum í N-Ítalíu og Austurríki því þeir fjórir sem smituðust af öðrum hérlendis smituðust af fólki sem hafði verið í slíkum ferðum.
Þetta kom fram á upplýsingafundi um COVID-19 veiruna í samhæfingarmiðstöð björgunaraðgerða í Skógarhlíð í dag. „Það virðist vera heitur pottur af sýkingum á þessu svæði og þetta er líkar reynslan annars staðar í Evrópu,“ sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir. „Við höldum áfram með það sem við höfum verið að gera, að greina sýkingar snemma og beita einangrun, leita að þeim sem gætu hafa smitast og setja þá í sóttkví,“ sagði Þórólfur enn fremur, en þessar aðgerðir íslenskra yfirvalda teljast harðar.
„Þegar mikið er orðið af innlendu smiti verða þessar aðgerðir endurskoðaðar.“
Fram kom í máli Ölmu Möller landlæknis að aukin áhersla yrði lögð á viðkvæma hópa, eldra fólk og fólk með undirliggjandi sjúkdóma, t.d. krabbamein, lungnasjúkdóma, sykursýki og nýrnabilun.
Fram kom á fundinum að reykingafólk er viðkvæmara fyrir veirunni en þeir sem reykja ekki. Börn eru minna viðkvæm fyrir henni en fullorðnir og ófrískar konur eru ekki í sérstakri áhættu.
Lögð var áhersla á að fólk leitaði sér fyrst upplýsinga í síma 1700 áður en það færi á heilsugæslustöðvar. Einnig er hægt að eiga í netspjalli um þessi mál á vefsíðunni heilsuvera.is.
Ítarlegar upplýsingar um veiruna, sem allir eru beðnir um að kynna sér, er að finna á vef landlæknis.