fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Samninganefnd Eflingar vill viðræður „á forsendum yfirlýsinga borgarinnar“

Ritstjórn DV
Mánudaginn 24. febrúar 2020 11:45

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samninganefnd Eflingar gagnvart Reykjavíkurborg hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að nefndin telur yfirlýsingar borgarinnar og Dags B. Eggertssonar í fjölmiðlum fyrir helgi gefa til kynna að borgin sé tilbúin að koma betur til móts við Eflingarfélaga en kynnt var á undangengnum samningafundi.

Sjá einnig: Tilboð Reykjavíkurborgar fyrir starfsfólk hjá Eflingu

Telur nefndin að með yfirlýsingum sínum hafi borgin hugsanlega skapað meiri grundvöll til áframhalds viðræðna en ætlað var og kallar eftir staðfestingu borgarinnar á því. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Efling sendi frá sér.

„Fulltrúar Eflingar hafa áður bent á ósamræmi milli þess tilboðs sem borgin kynnti hjá ríkissáttasemjara þann 19. febrúar og þess hvernig tilboðinu var lýst í fjölmiðlum á sólarhringunum þar á eftir. Í ljósi þess að engir fyrirvarar eða leiðréttingar hafa komið fram frá borginni síðan þá lítur samninganefnd Eflingar svo á að sú útgáfa tilboðs sem kynnt var í fjölmiðlum sé raunverulegt samningsútspil fremur en tilraun til að fegra það sem kynnt var á samningafundi.“

Í tilkynningunni er bent á að meginatriði málsins sé til hve margra starfsheita og starfsmanna á leikskólum borgarinnar tilboð borgarinnar nái „og hvort það sé skilyrt af því að notast við handstýrða endurskilgreiningu starfsmats á einstökum störfum eða ekki.“

Að mati samninganefndar Eflingar er ekki hægt að skilja yfirlýsingar borgarinnar frá því fyrir helgi  öðruvísi en svo að tilboð borgarinnar nái til allra almennra ófaglærðra starfsmanna Eflingar á leikskólum. Það sé óskilyrt af handstýrðri starfsmatsbreytingu, enda hafi tilboðið verið kynnt með tilteknum krónutölum og með vísun í „starfsfólk Eflingar á leikskólum“ án fyrirvara.

Í yfirlýsingunni fjallar samninganefndin ítarlega um þann skilning sem hún leggur í yfirlýsingar borgarinnar og óskar eftir viðræðum á þeim grunni, sé borgin sammála þeim skilningi.

„Ég get ekki neitað því að við höfum klórað okkur talsvert í kollinum yfir framsetningu borgarinnar í fjölmiðlum á tilboði hennar í kjölfar samningafundarins síðasta miðvikudag. Landsmenn sem fylgdust með fjölmiðlum hafa væntanlega skilið þetta sem tilboð um minnst 110 þúsund skilyrðislausa hækkun grunnlauna Eflingarfélaga sem eru í almennum ófaglærðum störfum á leikskólum. Þetta er ekki í samræmi við það sem var kynnt fyrir okkur í herberginu,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar, í tilkynningunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum
Fréttir
Í gær

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mætti tveimur rottum í Skeiðarvoginum í morgun

Mætti tveimur rottum í Skeiðarvoginum í morgun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dönsk stjórnvöld búa sig undir stríð – Hyggjast þvinga fólk til að gegna herþjónustu

Dönsk stjórnvöld búa sig undir stríð – Hyggjast þvinga fólk til að gegna herþjónustu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fullt hús á netöryggisráðstefnu Syndis

Fullt hús á netöryggisráðstefnu Syndis