fbpx
Fimmtudagur 19.mars 2026
Fréttir

Segja að Jón Þröstur hafi verið myrtur í kjölfar samskipta við íslenskan glæpamann

Máni Snær Þorláksson
Sunnudaginn 4. október 2020 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jón Þröstur Jónsson hvarf sporlaust í Dublin á Írlandi þann 9. febrúar árið 2019. Nú hafa orðið nýjar vendingar í málinu.

Mál Jóns Þrastar vakti mikla athygli í fyrra en Jóns var lengi leitað án árangurs. Írski fjölmiðillinn Independent.ie birti í nótt frétt þar sem það er sagt að búið sé að tilkynna lögreglunni á Íslandi að Jón hafi verið myrtur „af slysni“ af öðrum Íslendingi. Sagt er að það hafi gerst í kjölfar þess að mennirnir rifust vegna eyðslu á spilapeningum. Þá segir í frétt Independent að maður sem situr í fangelsi hér á Íslandi hafi spilað lykilhlutverk í að koma þessum upplýsingum til lögreglu.

Lögreglunni á Íslandi hefur verið gert viðvart að Jón hafi tekið þátt í ólöglegum póker leik á föstudagskvöldinu og tapað þar meira en 4 þúsund evrum, eða um 650 þúsund íslenskum krónum. Þessi peningur var í eigu íslensks glæpamanns samkvæmt heimildum.

Þessar 4 þúsund evrur áttu að fara í fleiri leikmenn en sagt er að Jón hafi keypt sig inn í einn stóran leik og tapað öllum peningnum. Þá er einnig sagt að Jón hafi reynt að fara úr leiknum þegar hann byrjaði að tapa en fékk ekki leyfi til þess. Þegar Jón fór út úr húsi morguninn eftir að hann tapaði peningnum er talið að hann hafi farið að hitta manninn sem átti peninginn sem hann tapaði kvöldið áður.

Meinti morðinginn sagður búa hér á landi

Talið er að maður sem situr í fangelsi hér á landi vegna þjófnaðar hafi haft samband við fjölskyldu Jóns í gegnum annan einstakling. Maðurinn í fangelsinu vildi fá að tala við einkaspæjara sem systir Jóns réði til að leysa málið en fangelsisyfirvöld vildu ekki leyfa það. Maðurinn í fangelsinu náði þá að koma sér í samband við fjölskyldu Jóns í gegnum konu sem kom upplýsingum til fjölskyldunnar.

Maðurinn er meðal annars sagður hafa sagt fjölskyldunni að Jón hafi verið myrtur „af slysni“ af manninum sem lánaði honum peninginn. Þá er sagt að þessi meinti morðingi búi hér á Íslandi.

Ekki er talið að Jón hafi verið viðriðin glæpi líkt og maðurinn sem hann fékk peninginn hjá. Hins vegar er talið að Jón hafi kynnst manninum og öðrum glæpamönnum þegar hann vann sem leigubílsstjóri.

Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við DV að málið sé á forræði írskrar lögreglu og íslensk lögregla muni því ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Hann staðfesti þó að ýmsar upplýsingar hafi verið skoðaðar í tilraunum lögreglu til að finna út um afdrif Jóns.

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Formaður húsfélags í Vesturbæ fær ítrekað fólk, trúnaðarbréf og pizzur heim sem fara eiga á LSH – Ástæðan er einföld og lausnin líka

Formaður húsfélags í Vesturbæ fær ítrekað fólk, trúnaðarbréf og pizzur heim sem fara eiga á LSH – Ástæðan er einföld og lausnin líka
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Skólamál Reykjanesbæjar langt fram úr fjárhagsáætlun

Skólamál Reykjanesbæjar langt fram úr fjárhagsáætlun
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Verk og vit hefst á morgun

Verk og vit hefst á morgun
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Eigandi RE/MAX sakfelldur fyrir markaðsmisnotkun

Eigandi RE/MAX sakfelldur fyrir markaðsmisnotkun
Fréttir
Í gær

Stýrivextir hækka um 0,25%

Stýrivextir hækka um 0,25%
Fréttir
Í gær

Vilhjálmur áhyggjufullur: „Fyrir þann hóp myndi gjaldtaka hafa verulega íþyngjandi áhrif“

Vilhjálmur áhyggjufullur: „Fyrir þann hóp myndi gjaldtaka hafa verulega íþyngjandi áhrif“