Sex rúmenskir karlmenn komu til landsins fyrir fimm dögum. Mennirnir áttu að vera í sóttkví í tvær vikur en þrír þeirra voru handteknir í gær grunaðir um þjófnað. Tveir þeirra reyndust vera smitaðir af COVID-19. Í kjölfarið lýsti lögreglan eftir hinum þremur mönnunum og hafa tveir þeirra fundist. Lögreglan leitar enn að Pioaru Alexandru Ionut.
Sjá einnig: Lögreglan leitar enn að þessum rúmenska karlmanni
Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir ræddi um málið í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Aðspurður hvort að mál Rúmenanna sýndi að það væri veikleiki í kerfinu svaraði Þórólfur að það væri veikleiki í svona kerfi ef menn fara ekki eftir reglum.
„Í öllu svona kerfi er það veikleiki ef menn fara ekki eftir reglum og hafa eitthvað óheiðarlegt í hyggju,“ segir hann. „Ég held að það sýni einmitt nauðsyn þess að hafa svona skimun. Ef þessir aðilar hefðu farið í skimun þá hefðum við fengið þessar upplýsingar miklu fyrr og við hefðum látið þá hlaða niður rakningarappinu. Hljómar kannski undarlega að vera þjófur og með rakningarapp í símanum sínum.“
Þórólfur bætir við að hann telur mál Rúmenanna einnig sýna að það hafi verið rétt ákvörðun að hætta við að taka mark á vottorðum erlendis frá.
Þann 12. maí tilkynnti ríkisstjórnin um þrjár leiðir sem áttu að bjóðast ferðamönnum við komu inn í landi. Það átti að standa til boða fyrir ferðamenn að koma inn í landið ef þeir myndu sýna vottorð þess efnis að þeir hefðu verið með veiruna og jafnað sig eða væru einfaldlega ekki með hana. Slíkt vottorð þyrftu að koma frá viðurkenndri heilbrigðisstofnun og að sögn sóttvarnarlæknis gæti það að öllum líkindum ekki verið eldra en fjögurra daga gamalt. Hins vegar mun sú leið ekki standa til boða þegar landið verður opnað á morgun.
„Við sáum fram á að fólk kæmi með mismunandi vottorð sem væri erfitt að sannreyna. Ef menn hafa eitthvað óheiðarlegt í hyggju er mjög auðvelt að [koma með falsað vottorð] og við gætum hæglega lent í [einhverju svona] ef við ætlum að taka mark á öllum vottorðum og reyna að meta þau. Þannig ég held að það hafi verið rétt ákvörðun líka að taka ekki mark á því og skima hreinlega alla og hafa þetta eins mikið í okkar höndum eins og mögulegt er,“ segir Þórólfur.
Þórólfur segir að rakningarteymið sé enn að störfum og sé að skoða ferðir Rúmenanna.
„Ég geri ekki ráð fyrir að mennirnir hafi verið að blandast mikið Íslendingum. Mér finnst það ólíklegt, eitthvað væntanlega og við þurfum að nota sömu vinnubrögð og við höfum gert fram að þessu,“ segir hann.