fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
Fréttir

Telja að algengasta verkjalyf heims gæti aukið líkur á einhverfu og ADHD

Ritstjórn DV
Föstudaginn 22. ágúst 2025 18:00

Paracetamol er eitt mest notaða verkjalyf heims

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vísindamenn í  Bandaríkjunum vara nú við að paracetamól – eitt mest notaða verkjalyf í heiminum – geti hugsanlega aukið líkur á því að börn fæðist með einhverfu eða athyglisbrest með ofvirkni (ADHD).

Í nýrri samantekt, sem byggir á gögnum úr 46 rannsóknum sem náðu til rúmlega 100.000 einstaklinga, kemur fram að sterkar vísbendingar séu um tengsl milli notkunar paracetamóls á meðgöngu og auknum líkum á áðurnefndum taugaþroskaröskunum. Samantektin var birt í vísindaritinu Evironmental Health en þar kemur fram að vísindamenn hafi metið gögn í sjúkraskrá mæðra hvenær á meðgöngu paracetamól var tekið inn og síðan hvort að afkvæmin hafi síðar verið greind með raskanirnar.

Daily Mail fjallar um niðurstöðurnar og þar eftir haft eftir Dr. Diddier Prada, aðstoðarprófessor við Mount Sinai-spítalanna í New York að þar sem notkun paracetamóls sé afar útbreidd geti lítil áhættuaukning sem þessi haft verulegar lýðheilsulegar afleiðingar.

Hann leggur þó áherslu á að ófrískar konur eigi ekki að hætta inntöku lyfsins án samráðs við lækni.  „Ómeðhöndlaður hiti eða verkir geta einnig skaðað fóstrið,“ sagði hann og bætti við að konur ættu alltaf að ræða öruggustu leiðina við heilbrigðisstarfsfólk og íhuga lausnir án lyfja þegar það er hægt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hálkuvarnir dugðu ekki til að koma í veg fyrir banaslys þar sem lítið barn lést

Hálkuvarnir dugðu ekki til að koma í veg fyrir banaslys þar sem lítið barn lést
Fréttir
Í gær

Vilhjálmur sár og svekktur – „Við vorum svikin“

Vilhjálmur sár og svekktur – „Við vorum svikin“