Regus er fyrirtæki sem rekur fjóra skrifstofukjarna. Fyrirtækjaeigendur hafa leitað til Regus og fengið skrifstofuaðgang til bráðabirgða. Þannig geta fyrirtækin haldið áfram rekstri og dreift áhættu vegna COVID-19.
Fjallað er um þetta á vef Fréttablaðsins og rætt við eiganda Regus, Tómas Hilmar Ragnarsson.
Fyrirtækjaeigendur hafa leitað til Tómasar sem nú býður fyrirtækjum hér á landi fram aðstoð sína vegna veirunnar. Tómas segir í samtali við Fréttablaðið að hin ýmsu fyrirtæki hafi gert samninga við Regus og þannig fengið aðgang að skrifstofuaðstöðu hjá Regus til bráðabirgða, í þeim tilgangi að fyrirtækin geti haldið áfram rekstri eins og ekkert hafi í skorist.
Tómas býður fyrirtækjum að vera með hluta af rekstrinum hjá Regus, þannig sé starfsemin á tveimur stöðum og áhættunni dreift. Ef ein starfstöð þarf að fara í sóttkví getur hin haldið ótrauð áfram. Fyrirtæki sem hafa leitað til Tómasar eru meðal annars fjármála- og þjónustufyrirtæki sem þurfa að halda uppi starfsemi allan sólarhringinn.
„Það er viturlegt að dreifa áhættu og halda uppi fullu þjónustustigi fyrirtækja og stofnanna sama hvert verkefnið er hverju sinni,“ segir Tómas og bætir við að hann búist við að fleiri fyrirtæki komi sér upp aðstöðu hjá Regus. Hann bætir við: „Með því að setja upp tímabundið aðra starfsstöð, fyrir hluta starfsfólks, þá má minnka líkur á því að rof komi í þjónustu fyrirtækja og stofnana. Þarna á nýyrðið vel við að geyma ekki alla hananna og hænurnar í sömu körfunni.“