fbpx
Föstudagur 20.júní 2025
Fréttir

Borgarfulltrúi fær illa á baukinn og sögð fagna COVID-hruninu: „Gott ef við værum ekki að fagna gjaldþroti hálfrar þjóðarinnar“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 11. mars 2020 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristín Soffía Jónsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, er harðlega gagnrýnd af mörgum fyrir orð sín á Twitter. Flestir sem gagnrýna hana eru af hægri væng íslenskra stjórnmála. Hún segir að þó enginn vilji efnahagshrun eða kulnun, þá sé nauðsynlegt að horfast í augu við að taumlaus vöxtur gangi ekki til lengri tíma vegna hamfarahlýnunar. Hún skrifar í gær:

„Kólnun hagkerfisins er áhyggjuefni en gleymum því samt ekki að minni framleiðsla, minni eyðsla, færri flugferðir og minni mengun er samt nákvæmlega það sem við stefnum að. Kalt hagkerfi – köld pláneta. Þurfum að vinna með þessa kólnun – ekki gegn henni.“

Sjálfstæðismaðurinn Friðjón Friðjónsson er fyrstur til að gagnrýna hana en hann skrifar: „Framtíðin hjá Samfylkingu, aukið atvinnuleysi, verra velferðarkerfi, minni kaupmáttur fjölskyldna, heimskt og heimaalið fólk.“

Sveinn Friðrik Sveinsson, fjármálastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, tekur undir. „Kalt hagkerfi -> köld heilbrigðis- og menntakerfi -> verri lífskjör þjóðarinnar. Nöturleg sýn,“ skrifar hann. Þessu svarar Kristín Soffía: „Satt mjög nöturleg. En hlýnun jarðar, þótt hún hljómi betur er ekki síður nöturleg. Verðum að dempa þessa niðursveiflu en markmiðið getur ekki verið að ná öllu upp í sama swing glóbalí. Þá geta þessir þjóðarleiðtogar bara hætt að hittast.“

Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, skýtur líka á hana. „Ok, þú ert þá væntanlega í samræmi við það til í mörg prósenta lækkun kaupmátts og launa almennings og mun minna úr að spila fyrir ríki og sveitarfélög?,“ spyr hann og þá svarar Kristín Soffía:

„Nei ég er ekki til í neitt af þessu og er með margfaldan heimsendakvíða. En nú þegar það sést til himins í Kína þá verðum við að þora að spyrja okkur hvort leiðin áfram sé endilega leiðin til baka. Er neysludrifið hagkerfi eina svarið og hamfarahlýnun óumflýjanleg?“

Konráð tekur þessu ekki illa. „Gott mál, en það hljómaði svolítið eins og þú værir til. Nei að sjálfsögðu ekki. En ef leiðin er einungis sú að draga almennt úr neyslu, gera ferðalög dýrari osfrv er óhjákvæmilegt að kaupmáttur minnkar osfrv. Mér hugnast betur nýir orkugjafar og skynsamlegri neysla.

Auglýsingamaðurinn Þorvaldur Sverrisson virðist ekki ósammála en telur orð hennar taktlaus. „Það væri samt frekar gott ef við værum ekki að fagna gjaldþroti hálfrar þjóðarinnar í beinni útsendingu.“ Því svarar Kristín Soffía: „Róa sig. Er ekki að óska eftir gjaldþroti neins né á þetta eitthvað sérílagi við un Ísland. En ástandið setur fókus á að neyslusrifið hagkerfi er aldrei að fara að draga úr losun. Þetta er alheimsvandamál.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Egill fékk skammir fyrir að gagnrýna mótmælendur – „Og þú móðgast yfir Palestínskum fána á 17 júní!!!???”

Egill fékk skammir fyrir að gagnrýna mótmælendur – „Og þú móðgast yfir Palestínskum fána á 17 júní!!!???”
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Var Jón Þröstur myrtur af launmorðingja sem fór mannavillt?

Var Jón Þröstur myrtur af launmorðingja sem fór mannavillt?
Fréttir
Í gær

Leigjandi beið ósigur í harðvítugri deilu við leigusala – Ásakanir um hlutdrægni höfðu ekkert að segja

Leigjandi beið ósigur í harðvítugri deilu við leigusala – Ásakanir um hlutdrægni höfðu ekkert að segja
Fréttir
Í gær

Maðurinn sem lifði af flugslysið segist vera þjakaður af sektarkennd

Maðurinn sem lifði af flugslysið segist vera þjakaður af sektarkennd