Sex einstaklingar til viðbótar hafa verið greindir með COVID-19, sjúkdóminn sem Kórónaveiran veldur. Almannavarnir lýst yfir neyðarstigi. Þetta kom fram á blaðamannafundi rétt í þessu.
Tveir af þeim sex einstaklingum sem greindir voru í dag eru svonefnd innanlandssmit, kona og karl á sextugs- og sjötugsaldri. Þau voru í tengslum við smitaða og veika einstaklinga sem komu frá skíðasvæðum í Ölpunum. Aðrir einstaklingar voru á ferðum í og við Alpana á skíðum.
Til skoðunar er að uppfæra áhættusvæði til að ná yfir fleiri svæði við Alpanna en þar virðist vera sýking í gangi sem er að berast hingað til lands. Þetta sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á blaðamannafundi.
Einstaklingar sem hafa verið á skíðum í Ölpunum, jafnvel svæðum sem ekki eru á skilgreindum áhættusvæðum eiga að hafa samband við 1700 og fara í sýnatöku.
Samkvæmt Víði Reynissyni, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, styttist í samkomubann, en það mun vera besta tólið til að sporna við smiti. Til að slík verði gert þarf þó meira af innanlandssmitum að greina og verður ekki gert nema nauðsyn þyki. Slík samkomubann geti náð til hittinga þar sem 15 eða fleiri koma saman.
Samkvæmt Þórólfi hefur útfærsla á samgöngubanni verið rædd og horft til þess hvort um stigmagnandi aðgerðir verði að ræða þar sem í upphafi verði horft til stórra samkomna.
Til skoðunar er hvort að veiran hafi búið um sig í samfélaginu án þess að við höfum verið hennar var.
Spurning barst úr sal hvort að einstklingar með smit rakin til Austurríkis hafi smitast í flugvélinni. Þórólfur sagði það hæpið og að gengið sé út frá því að þeir einstaklingar hafi smitast fyrir flugið.
Samkvæmt Landlækni hafa greinst tæplega fjögur þúsund smit á Ítalíu og eru 150 látnir og margir alvarlega veikir. Þetta þykir endurspegla alvarleika faraldsins og hversu mikilvægar aðgerðir til að sporna við honum og hefta eru.
Allir sem koma með flugi til Íslands á morgun fara í sóttkví og verða sýni tekin úr einstaklingum sem sýna einkenni. Á flugvellinum fara þau í rými sem aðrir farþegar hafa ekki aðgang að og fara svo heim til sín.