fbpx
Miðvikudagur 07.maí 2025
Fréttir

Jón Viðar ekki hrifinn af Hatara: „Hvorki fugl né fiskur“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 21. maí 2019 20:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hinn þekkti leiklistargagnrýnandi Jón Viðar Jónsson gefur lítið fyrir atriði Hatara á Eurovision sem svo margir hafa hrifist af og lenti í 10. sæti í keppninni, eins og flestir vita. Jón Viðar er þekktur fyrir að synda gegn straumnum og skoðanir sínar segir hann jafnan umbúðalaust. Jón Viðar segir að atriði Hatara hafi tónlistarlega séð hvorki verið fugl né fiskur og hann hafi gjörsamlega verið búinn að fá nóg eftir að hafa horft á það einu sinni. Stuttur pistill hans um Hatara er eftirfarandi:

„Ég verð að segja að mér finnst sumir ofmeta mjög hið margumrædda atriði Hatara, ma í pistlum hér á FB. Einn ágætur vinur minn fer með himinskautum við góðar undirtektir fylgjenda og helst á honum að skilja að þetta númer (sem ég held sé skásta orðið yfir það) jafnist að skáldlegu gildi á við sjálfa Ástríði Lindgren og Biblíuna. Það er fjarri öllu lagi. Tónlistarlega var þetta hvorki fugl né fiskur og maður hafði fengið nóg – meiren nóg – þegar maður hafði horft upp á atganginn a sviðinu einu sinni. Þegar menn segja að þeim hafi fundist til um þetta kemur mér í hug (eina ferðina enn) sagan um keisarann og nýju fötin hans. Mér þykir það leitt, en þannig er það nú bara.“

Eins og nærri má geta eru skiptar skoðanir um þennan ördóm Jóns Viðars. Kona ein segist vera sammála og maður skrifar: „Sammála Jóni. Gróflega ofmetið atriði.“

Annar FB-vinur Jóns skrifar hins vegar: „Æ, ósköp eru langt utan við þann heim sem þú ert að teygja þig í til að dæma.“

Rithöfundurinn ástsæli, ÓlafurHaukur, tekur hins vegar undir með Jóni Viðari og ritar:

„Í húsi tónlistarinnar eru þúsund vistarverur. Persónulega myndi ég aldrei af sjálfsdáðum setja þetta atriði í spilara – en sem áhorfandi þá segir ég: Flott hjá ykkur! Ég spila samt aftur og aftur að eign frumkvæði portúgalska lagið frá því í hitteðfyrra.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Hrollvekjandi uppgötvun í niðurníddu verksmiðjuhúsnæði sögð benda til þess að Madeleine McCann sé látin

Hrollvekjandi uppgötvun í niðurníddu verksmiðjuhúsnæði sögð benda til þess að Madeleine McCann sé látin
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Faðir Sigurbjargar stígur fram og gefur lítið fyrir svör Sigrúnar: „Mér þótti ég sjá lygina leka niður hökuna á henni“

Faðir Sigurbjargar stígur fram og gefur lítið fyrir svör Sigrúnar: „Mér þótti ég sjá lygina leka niður hökuna á henni“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Indland gerir flugskeytaárás á Pakistan

Indland gerir flugskeytaárás á Pakistan
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

„Við erum ekki með verkfallsrétt…en allur hópurinn er hins vegar með atkvæðisrétt og þá byrja menn að sperra eyrun“

„Við erum ekki með verkfallsrétt…en allur hópurinn er hins vegar með atkvæðisrétt og þá byrja menn að sperra eyrun“
Fréttir
Í gær

Útburður að hefjast á Sigurbjörgu úr hryllingshúsinu við Bríetartún – „Ég fékk tvo virka daga til að vinna í málinu“

Útburður að hefjast á Sigurbjörgu úr hryllingshúsinu við Bríetartún – „Ég fékk tvo virka daga til að vinna í málinu“
Fréttir
Í gær

Hanna Katrín segir leiðréttinguna löngu tímabæra og þjóðina eiga skýlausan rétt á henni

Hanna Katrín segir leiðréttinguna löngu tímabæra og þjóðina eiga skýlausan rétt á henni