Fjögurra ára barn datt af hlaupahjóli í gær með þeim afleiðingum að það rotaðist. Atvikið átti sér stað í Kópavogi. Barnið var flutt á sjúkrahús til aðhlynningar en ekki er frekari fréttir að hafa af líðan þess.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir einnig frá því að tilkynnt var um skothvelli í Helgafelli um kl. 18 í gær. Lögregla var með talsverðan viðbúnað vegna málsins. Tæpum klukkutíma eftir að tilkynningin barst var maður stöðvaður og viðurkenndi hann að hafa verið að skjóta úr startbyssu upp í fjallinu í þeim tilgangi að venja hund sinn við skothvelli þar sem hann var að þjálfa hann sem veiðihund. Skýrsla var tekin af manninum og honum ráðlagt að finna sér aðrar og betri aðferðir og staðsetningar við að þjálfa hundinn sinn.
Kona var handtekin í gær eftir að hafa gert tilraunir til að hnupla talsverðu magni af fatnaði úr verslun. Var hún laus að lokinni skýrslutöku.
Maður féll í stiga í hverfi 104 og fann til eymsla í höfði, fótum og öxl eftir fallið. Maðurinn var fluttur á slysadeild til frekari skoðunar.
Maður var handtekinn vegna líkamsárásar í hverfi 108 og var hann vistaður í fangaklefa. Árásaþoli fékk minniháttar meiðsli.