

Kristján Óli Sigurðsson gerði upp íþróttaárið með Helga Fannari Sigurðssyni í viðhafnarútgáfu af Íþróttavikunni á 433.is.
Karlalið FH er komið með nýjan þjálfara í Jóhannesi Karli Guðjónssyni. Hann kom frá AB Kaupmannahöfn í dönsku C-deildinni en það var beðið í fleiri vikur með að tilkynna hann í Hafnarfirði þó flestir vissu af yfirvofandi ráðningu.
„Ég fundaði sjálfur með Davíð Þór Viðarssyni (yfirmanni knattspyrmála) og syni mínum. Ég vildi halda honum í FH en hann gat bara ekki sagt okkur hver yrði þjálfari. Samt vissu það allir sem sátu þennan fund. Það var skemmtilegt,“ sagði Kristján og á þar við Dag Fjeldsted, sem lék á láni með FH frá Breiðabliki í sumar.
„Þetta snerist víst um það að Jói Kalli gat losnað eftir síðasta leik. Það hefur verið einhver heimþráar-klásúla sem virkjaðist eftir síðasta leik fyrir áramót,“ sagði Kristján enn fremur.
Umræðan í heild er í spilaranum.