Kolbrún Bergþórsdóttir, blaðamaður skrifaði í morgun pistil í fréttablaðið þar sem hún tjáir sig um reykingar í efni streymisveitunnar frægu Netflix.
Á dögunum gaf Netflix það út að það ætlaði sér að draga úr reykingum í sjónvarpsþáttaröðum og kvikmyndum sem að streymisveitan framleiðir.
Kolbrún virðist ekki vera ánægð með þetta uppátæki Netflix, en henni finnst dregið úr trúverðugleika ef að reykingar eigi sér ekki stað í ákveðnum aðstæðum.
„Reykingar eru ekki í tísku í dag en voru það fyrir nokkrum áratugum. Erfitt er að gera kvikmynd eða sjónvarpsþátt sem gerist á þeim árum án þess að fólk, þar á meðal unglingar, sjáist reykja. Þetta voru tímar þegar þeir sem ekki reyktu voru stimplaðir sem ansi sérsinna og jafnvel andfélagslega sinnaðir.“
„Alls staðar var reykt, meira að segja í flugvélum þar sem farþegar gátu valið um það hvort þeir vildu vera í reyklausu farrými eða farrými þar sem reykingar voru leyfðar. Margt bindindisfólk á tóbak valdi reykplássið því þar var venjulega mun skemmtilegra fólk en á reyklausa farrýminu.“
Kolbrún talar líka um að kvikmynda og þáttagerðarfólkið eigi að hafa listrænt frelsi til að velja um það hvort reykt sé í efni þeirra
„Nú er blessunarlega minna um reykingar þótt margir stundi þær enn. Kvikmyndagerðarmenn eiga að hafa listrænt frelsi til að velja hvort þeir sýni þær í myndum sínum.“
Kolbrún varpar einnig fram spurningu, ef banna á reykingar í sjónvarpsþáttum og kvikmyndum, á þá líka að banna áfengisdrykkju?
„Ef setja á höft á reykingar í leiknu efni þá er spurning hvað glögg augu muni næst sjá sem meinsemd. Áfengi kemur samstundis upp í hugann. Í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum er fólk æði oft að fá sér í glas án þess að því verði meint af. Mjög er hætt við að áhrifagjarnir áhorfendur taki þessari drykkju sem næsta sjálfsögðum hlut og átti sig ekki á að áfengisdrykkja getur leitt einstakling í glötun.“
„Martini-drykkja James Bond er einmitt gott dæmi um áratuga upphafningu á drykkjumenningu. Það fer sæluhrollur um aðdáendur Bond myndanna í hvert sinn sem kappinn segir við barþjóninn: „Shaken, not stirred.“ Hversu margir hafa ekki hermt eftir hetjunni sinni og pantað sér þennan drykk?“
Kolbrún spyr einnig út í spilavíti og hamborgarastaði.
„Ef forráðamenn Netflix vilja vera sjálfum sér samkvæmir hljóta þeir að mælast til þess að ef persónur í kvikmyndum sjást í spilavítum þá tapi þær peningunum sínum og séu þannig öðrum víti til varnaðar.“
„Áfram má halda. Við lifum á offitutímum. Í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum sjást persónur, unglingar alveg sérstaklega, úða í sig hamborgurum. Þar er greinilega á ferð hylling til offitunnar? Á að láta það óátalið?“
Kolbrún segir að Netflix hafi að mörgu að gæta og kallar þetta uppátæki streymisveitunnar hræsni
„Þessi tilraun Netflix til að ala áhorfendur upp í góðum siðum hefur sem betur fer ekki alls staðar fallið í góðan jarðveg. Danskir framleiðendur og leikstjórar hafa til dæmis hæðst að þessu framtaki, kallað það forsjárhyggju, ritskoðun og hræsni – sem það einmitt er.“
„Netflix hefur sannarlega að mörgu að gæta.“