fbpx
Sunnudagur 01.júní 2025
Fréttir

Davíð Oddsson styrkti Sævar Ciesielski um „væna fjárhæð“

Ari Brynjólfsson
Miðvikudaginn 25. júlí 2018 14:12

Davíð Oddsson, hættir sem ritstjóri Morgunblaðsins á árinu

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Davíð Oddsson styrkti Sævar Ciesielski þegar Sævar glímdi við fjárhagserfiðleika á tíunda áratug síðustu aldar, þetta staðfesti Davíð í samtali við Vísi í dag.

Sigurfreyr Jónasson, sem vann með Sævari að endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmála, upplýsti þetta í athugasemd við grein Jóns Steinars Gunnlaugssonar, sem var svar við grein Hafþórs Sævarssonar, sonar Sævars. Sigurfreyr, sem hafði ekki áhuga á að ræða málið í samtali við DV, segir í athugasemdinni að Davíð hafi reynt af bestu getu að rétta hlut Sævars.

Sævar hafi orðið stórskuldugur vegna málsins og hafi því gengið á fund Davíðs, sem þá var forsætisráðherra, Davíð hafi hlustað á Sævar af miklum skilningi og gefið honum „væna fjárhæð“ til að halda baráttunni áfram. Davíð, sem talaði um að framin hefðu verið dómsmorð í málinu, vildi ekki segja hversu há fjárhæðin var:

„Þess utan var það svo að þegar að Sævar bjó með konu á Stúdentagörðum, nærri heimili mínu á Lynghaga 5, bankaði hann oft upp á að kvöldi til og fékk kaffisopa og fór yfir sín mál. Einhvern tíma síðar mun ég kannski fjalla um þau mál og fleiri,“ sagði Davíð í svari við fyrirspurn Vísis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réttarhöldin yfir Ymi Art framundan – Ákærður fyrir að hafa myrt móður sína með 22 hnífstungum

Réttarhöldin yfir Ymi Art framundan – Ákærður fyrir að hafa myrt móður sína með 22 hnífstungum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Penninn Eymundsson opnar 350 fm verslun í nýjum verslunarkjarna á Selfossi

Penninn Eymundsson opnar 350 fm verslun í nýjum verslunarkjarna á Selfossi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Alvarlegt slys við Hvítá

Alvarlegt slys við Hvítá
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Oscar sendur til Kólumbíu á þriðjudag – „Við vorum að fá þau hrikalegu skilaboð“

Oscar sendur til Kólumbíu á þriðjudag – „Við vorum að fá þau hrikalegu skilaboð“