Guðmundur Sævar Sævarsson varaþingmaður Flokk flokksins ætlar að hætta að drekka áfengi. Fréttablaðið greindi frá því í gær að honum hefði verið vísað úr árlegri þingveislu sem haldin var á Hótel Sögu síðastliðinn föstudag. Hann var sagður hafa verið blindfullur og áreitt þingkonur og maka þingmanna með óviðeigandi strokum og snertingum. Þingmenn hafa staðfest þetta við fjölmiðla. Að lokum fengu gestir nóg og var starfsmaður Hótel Sögu beðinn um að vísa honum út. Guðmundur Sævar hefur starfað á geðsviði Landspítalans við geðhjúkrun. Guðmundur Sævar hefur nú sent frá sér yfirlýsingu og biðst afsökunar:
Guðmundur segir í yfirlýsingu sem hann sendi DV:
„Í ljósi þeirra umræðna sem hefur verið vil ég endurtaka að, ég þáði að fara í matarboð á vegum forseta þingsins.
Í tilteknum matarboði drakk ég úr hófi og hagaði mér ósæmilega, Á því hef ég beðið innilegar afsökunar, enda skömmin mín og er ég og mun vera ævinlega þakklátur aðilum að hafa tekið við henni.“
Guðmundur segir að hann hafi gert sér grein fyrir að hann eigi við áfengisvandamál að stríða og kveðst ætla að leita sér aðstoðar og það muni taka sinn tíma.
„Er klárt að ég þarf að huga að minni eigin vegferð og opinber staða er ekki rétti vettvangurinn fyrir mig í dag. Óska ég Ingu Sæland allra besta, en stendur hún fyrir góðu málefni og flokki.“
Þá segir Guðmundur að lokum:
„Annað sem hefur komið í kjölfarið er ekki svaravert og kemur af allt öðru meiði. Langar mig að biðja um að geta rétt nú við lífi mínu í friði til að verða mér og börnum mínum að sóma, án áfengis“