fbpx
Fimmtudagur 05.júní 2025
Fréttir

Felix fordæmir múslimaríki: „Þetta pakk sem stendur fyrir þessum ofsóknum … mun að öllum líkindum brenna í helviti“

Auður Ösp
Þriðjudaginn 3. október 2017 12:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það þarf að rífa þessi ríki inn í nútímann og beita þau einhverjum þeim þvingunum að þau láti af þessu ofbeldi gegn þegnunum,“ segir Felix Bergsson leikari, útvarpsmaður og söngvari og vísar þar í nýlegar fréttir af ofsóknum yfirvalda í Egyptalandi á hendur samkynhneigðum. Tugir einstaklinga hafa verið handteknir þar í landi undanfarna daga fyrir að hafa haldið á fána í regnbogalitum á tónleikum. Kveðst Felix vera bæði sorgmæddur og reiður vegna málsins.

Líbanska popphljómsveitin Mashrou Leila Mashrou’ Leila hélt tónleika í Kaíró þann 22.september síðastliðinn. Á tónleikunum mátti sjá áhorfendur veifa regnbogafánanum sem er tákn mannréttindabaráttu samkynhneigðra en söngvari hljómsveitarinnar er samkynhneigður.

Í kjölfarið var ljósmyndum og myndskeiðum af tónleikunum lekið á netið og síðan þá hafa 32 karlar og ein kona verið handtekin fyrir að „upphefja fjölbreytta kynhneigð.“

Fram kemur í frétt BBC að yfirvöld hafi látið framkvæma endaþarmsskoðun á minnst fimm mannanna til að ganga úr skugga um hvort þeir hafi stundað samkynhneigt kynlíf.

Samkynhneigð er ekki refsiverð samkvæmt egypskum lögum en yfirvöld hafa reglulega handtekið fólk sem hefur staðið í réttindabaráttu samkynhneigðra. Hafa þeir einstaklingar þá verið sakaðir um „siðspillingu“, „siðleysi“ og „guðlast“.

„Sorglegra en tárum taki“

Í opinni færslu á facebook vísar Felix í umrædda frétt BBC um málið.

„Framkoma múslimaríkja gagnvart LGBTQ samfélaginu er algjörlega óþolandi. Hér er glæpurinn sá að halda á regnbogafána á tónleikum. Þetta pakk sem stendur fyrir þessum ofsóknum á grundvelli versta stjórntækis sem manneskjan hefur fundið upp, trúarbragða, mun auðvitað tapa að lokum og að öllum líkindum brenna í helvíti en þjáningar þeirra sem þurfa að þola þetta ógeðslega ofríki enn í dag eru sorglegri en tárum taki.

Það þarf að rífa þessi ríki inn í nútímann og beita þau einhverjum þeim þvingunum að þau láti af þessu ofbeldi gegn þegnunum. Á meðan við bíðum eftir því deyja bræður okkar og systur,“

ritar Felix en ljóst er að honum er afar heitt í hamsi:

„Ég er sorgmæddur og reiður. Já ég er brjálaður!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Staðfesta komu Inzaghi
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Jón Þór fær 6 ára fangelsi fyrir hrottafengna árás á fyrrum sambýliskonu sína

Jón Þór fær 6 ára fangelsi fyrir hrottafengna árás á fyrrum sambýliskonu sína
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Þorgerður Kristín nýr forstjóri ÁTVR

Þorgerður Kristín nýr forstjóri ÁTVR
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Vilhjálmur sótillur yfir launahækkun ráðamanna – „Er þetta réttlæti? Er þetta samstaða?“

Vilhjálmur sótillur yfir launahækkun ráðamanna – „Er þetta réttlæti? Er þetta samstaða?“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Íslensk fjölskylda í hryllingsíbúð í Torrevieja – Ormar í klósettinu og mygla í ísskápnum – „Við erum búin að vera vakandi síðan 2 í nótt“

Íslensk fjölskylda í hryllingsíbúð í Torrevieja – Ormar í klósettinu og mygla í ísskápnum – „Við erum búin að vera vakandi síðan 2 í nótt“
Fréttir
Í gær

Smyglaður sími afhjúpar ógnarstjórn Kim Jong Un

Smyglaður sími afhjúpar ógnarstjórn Kim Jong Un
Fréttir
Í gær

Nýr formaður Heimdallar

Nýr formaður Heimdallar