Íslendingar sækja meira í dýra bústaði – Útlendingar sækja í litla sumarbústaði
Eitt allra dýrasta sumarhús landsins, ef ekki það dýrasta, er 844 fermetra glæsihús við Norðurbrú í Borgarfirði. Markaðsvirði hússins er einhversstaðar á milli 400 og 500 milljónir króna. Hér er um að ræða húsið Veiðilæk sem byggður var af Sigurði Einarssyni, fyrrverandi stjórnarformanni Kaupþings.
„Fyrir tveimur vikum fengum við einn svona stóran bústað í sölu í Öndverðarnesi og hann seldist á innan við sólarhring.“
Þetta er meðal þess sem kemur fram í umfjöllun Viðskiptablaðsins um aukna eftirspurn eftir stórum sumarhúsum hér á landi. Í umfjölluninni kemur fram að sumarbústaðir hafi hækkað mikið í verði á undanförnum þremur árum; á Suðurlandi um 20 prósent, á Vesturlandi um 26 prósent og á Norður- og Austurlandi um 25 prósent. Sú breyting hafi þó orðið á undanförnum misserum að fólki sækir meira í stærri hús, eða 90 til 100 fermetra.
„Þetta eru hús sem kosta 20 til 30 milljónir og jafnvel meira en það. Ef þau eru á vinsælum svæðum þá er markaðurinn núna þannig að þau seljast of á innan við viku. Fyrir tveimur vikum fengum við einn svona stóran bústað í sölu í Öndverðarnesi og hann seldist á innan við sólarhring,“ segir Jón Rafn Valdimarsson, löggiltur fasteignasali á Fasteignasölunni Miklaborg, í samtali við Viðskiptablaðið.
Í umfjölluninni kemur fram að húsið sem Sigurður Einarsson byggði sé að öllum líkindum dýrasti sumarbústaður landsins. Fram kemur að fasteignamat hússins fyrir árið 2018 sé 95,2 milljónir króna en þegar lóð og hlutdeild í Norðurá séu tekin í dæmið hækki fasteignamatið talsvert og fari vel yfir 100 milljónir.
Í umfjöllun DV frá árinu 2008, þegar fjallað var um fyrirhugaðar framkvæmdir vegna hússins, kom meðal annars fram að húsið væri búið öllum þeim lúxum sem hugsast getur. Í umfjölluninni kom fram að raka- og hitastærður vínkjallari af bestu gerð væri þar að finna, tvö gufuböð og fimm baðherbergi svo dæmi séu tekin. Þá er stutt í laxveiði í Norðurá.
Ef marka má fasteignasíðu Morgunblaðsins eru hátt í 400 sumarbústaðir til sölu á Íslandi í dag. Þar má finna fjölmarga glæsilega bústaði sem kosta álíka mikið og einbýlishús á höfuðborgarsvæðinu; allt frá 60 milljónum og upp í tæplega 100 milljónir. Þarna má til dæmis finna glæsilegt 174 fermetra heilsárshús við Skálabrekkugötu á Þingvöllum sem kostar 80 milljónir. Þá er að finna annað hús á Þingvöllum, Illagil, sem stendur á 6000 fermetra lóð og kostar tæpar 70 milljónir. Húsið er 179 fermetrar og með allt að sex metra lofthæð.
Í umfjöllun Viðskiptablaðsins segir Jón Rafn að nokkuð hafi verið um það að útlendingar kaupi sumarbústaði hér á landi þó það sé ekki mjög algengt. Þjóðverjar og Frakkar séu þó í þeim hópi og sækist þá frekar í litla sumarbústaði.