fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Fréttir

Hættulegur öfgamaður eða meinlaust ljúfmenni?

Múslimaklerkurinn Ahmaad Seddeeq og íslömsk trúfélög á Íslandi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 11. júní 2017 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Múslimaklerkurinn Ahmad Seddeeq komst í kastljós fjölmiðla fyrir skömmu er dv.is greindi frá því að hann teldi hryðjuverkaárásirnar í London um hvítasunnuhelgina vera sviðsettar að hluta. Þetta eru ekki einu umdeildu ummælin sem Seddeeq hefur látið frá sér í gegnum tíðina. Árið 2013 sagði hann í Speglinum á RÚV að samkynhneigð gæti leitt til barnsrána og mansals. Ummælin vöktu hörð viðbrögð og var á það bent að þau kynnu að varða við lög. Ekki kom þó til þess að Ahmad yrði kærður fyrir þau.

Í viðtalinu í Speglinum hafði Ahmad enn fremur eftirfarandi að segja um æskilegan klæðaburð kvenna samkvæmt íslam: „Hann útskýrir hvers vegna múslimum finnst blæjan nauðsynleg. Manneskjur séu breyskar og ef kona gengur um án blæju og sýnir þar með fegurð sína öðrum en eiginmanni sínum geti það vakið áhuga annars karlmanns á henni og þannig leitt til framhjáhalds. Hann segir karla og konur vera ólík þegar kemur að fegurð. Konur hugi meira að útlitinu en karlar og því sé ekki ástæða til þess að karlmenn gangi með blæju. Hann segir að það sé ekki verið að gera þá kröfu að konur líti illa út, þær megi klæðast fallegum fötum en það séu ákveðin takmörk. Fötin megi ekki vera of þröng eða flegin. Hann segir kröfuna um að hylja hár sitt og klæðast látlausum fatnaði ekki endilega alltaf vera það sem einstaklingurinn vill, en líkt og með mörg lög sé það í þágu stöðugleika samfélagsins í heild. Það minnki líkur á skilnaði og komi í veg fyrir að fjölskyldur sundrist.“

Ahmad Seddeeq fékk að halda fyrirlestur við Háskóla Íslands en Robert Spencer var hafnað

Hin harðlega gagnrýndu ummæli Ahmads komu ekki í veg fyrir að honum væri boðið að halda fyrirlestur við Háskóla Íslands aðeins um hálfu ári eftir að ummælin féllu, eða í febrúar árið 2014. Hélt Ahmad fyrirlestur undir heitinu „Konur í Íslam“ í aðalbyggingu Háskólans. Viðburðurinn var á vegum Trúarbragðafræðistofu Hugvísindasviðs HÍ. Nánar má lesa um erindi Ahmads hér.

Robert Spencer
Robert Spencer

Annar ekki síður umdeildur maður, bandaríski trúarbragðafræðingurinn, Robert Spencer, sem margir saka um íslamófóbíu, falaðist eftir því að halda erindi sitt hér á landi við Háskóla Íslands en var hafnað á þeim forsendum að hann væri ekki með doktorsgráðu. Spencer er með MA-gráðu í trúarbragðafræðum en Ahmad er með sömu gráðu í íslömskum fræðum. Erindi sitt flutti Spencer í fyrirlestrarsal á Grand hótel en koma hans til landsins vakti miklar deilur eins og rækilega hefur verið tíundað í fjölmiðlum.

Robert Spencer heldur úti víðlesinni bloggsíðu, jihadwatch.org sem margir fordæma og telja vera gróðrarstíu múslimahaturs, á meðan aðrir álíta að þar sé haldið uppi þarfri gagnrýni á íslamska öfgahyggu. Í nýlegum pistli vekur Robert Spencer athygli á frétt dv.is um ummæli Ahmads þess efnis að hryðjuverkin í London væru sviðsett að hluta og rifjar hann upp að Ahmad var þátttakandi í umræðum á fyrirlestri Spencers hér á landi. Spencer fer hörðum orðum um Ahmad og segir hann beita lygum og blekkingum: „Vinstri sinnaðir íslenskir fjölmiðlar voru skelfingu lostnir yfir því að við hefðum farið svona illa með þennan mann, af því við andmæltum þeim hálfsannleika og lygum sem hann bar á borð,“ skrifar Spencer.

Í pistli sínum segir Spencer jafnframt að Íslendingar eigi líka eftir að láta lífið í hryðjuverkaárásum jihadista.

„Þeir gagnrýndu íslenska menningu og héldu hatursfullar ræður um íslenskt þjóðfélag. Þeir voru mjög öfgafullir í skoðunum sínum. Þeir pössuðu ekki inn í okkar félagsskap“

Átökin um Ýmishúsið – Þrjú félög múslima á Íslandi

Í viðtali við Morgunblaðið um helgina fordæmir Salmann Tamimi, formaður Félags múslima á Íslandi, ummæli Ahmads um hryðjuverkaárásirnar í London og það tiltæki hans að birta samsæriskenningamyndband um atburðinn.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem leiðtoga múslima á Íslandi greinir á. Þeir sem játa íslamstrú á Íslandi eru varla mikið yfir 1.000 en þó eru þrjú félag múslima starfandi á landinu. Félögin þrjú eru Félag múslima á Íslandi,
Menningarmiðstöð múslima á Íslandi og Stofnun múslima á Íslandi.

Félagsmenn í tveimur síðarnefndu félögunum eru, a.m.k. margir hverjir, taldir fylgja mun harðari túlkun á trúarritum múslima en meðlimir í Félagi múslima á Íslandi, og teljast til svonefndra salafista. Átök urðu á milli félaga í síðarnefndu félögunum tveimur eftir að meðlimir í Stofnun múslima á Íslandi höfðu keypt Ýmishúsið, að Skógarhlíð 20, þar sem Ahmad og fylgismenn hans héldu til og létu bera félagið út úr húsinu með dómsúrskurði. Til handalögmála kom við útburðinn en DV greindi frá þessum átökum fyrir réttu ári síðan.

Salmann Tamimi
Salmann Tamimi

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Það veldur mörgum áhyggjum að aðilar í Stofnun múslima á Íslandi eru taldir hafa fjármagnað kaupin á Ýmishúsinu með peningum frá öfgafullum samtökum. Í frétt á Visir.is frá því í október árið 2010 segir meðal annars:

„Í menningarsetri múslima eru einstaklingar sem Salman Tamimi segist hafi rekið úr sínu félagi fyrir að hafa brotið lög félagsins um öfga, ofstæki og yfirgang í nafni trúarbragða. Þessir sömu aðilar eru í forsvari fyrir hópi fjárfesta sem fest hafa kaup á Ýmishúsinu. Í húsinu verður menningarsetur fyrir múslima, bænaaðstaða, barnaskóli og fleira.

Fjárfestarnir á bak við þessi 250 milljón króna kaup eru erlendir. Þeir heita Hussein Al-Daoudi, Maryam Moe og Sulaiman Abdullah Alshiddi. Það eru tengsl Hussein Al-Daoudi við öfgafulla múslima sem sett hafa verið spurningamerki við.

Hussein Al-Daoudi er skólastjóri Al-Salam einkaskólans í Svíþjóð sem gagnrýndur hefur verið fyrir að þiggja fjárframlög frá íslömskum trúboðasamtökum i Saudi Arabíu. Þau eru nátengd Al-Haramein samtökunum sem eru á lista öryggisráðs Sameinu þjóðanna yfir hryðjuverkasamtök.

Bandarísk yfirvöld telja sig hafa upplýsingar um að Al-Haramein hafi fjármagnað hryðjuverkahópa, á borð við Al-Kaída.

Salman Tamimi hefur lýst yfir áhyggjum af að Ýmishúsið og menningarmiðstöð múslima, sem þar á að vera, sé fjármagnað með þessum hætti. Hann vill að starf múslima á Íslandi séu á íslenskum forsendum, ekki Saudi-arabískum.

Norska dagblaðið Nordlys birti í nóvember árið 2010 umfjöllun um ofangreinda aðila og þar er rætt við Salmann Tamimi sem aðspurður hvers vegna hann hafi rekið þetta fólk úr Félagi múslima á Íslandi svarar svo orðrétt:

„Þeir gagnrýndu íslenska menningu og héldu hatursfullar ræður um íslenskt þjóðfélag. Þeir voru mjög öfgafullir í skoðunum sínum. Þeir pössuðu ekki inn í okkar félagsskap.“

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Í mars árið 2015 komu fram þær upplýsingar að aðilar í Sádí-Arabíu hyggðust styrkja byggingu mosku í Sogamýrinni í Reykjavík. Vakti það miklar áhyggjur hjá þáverandi forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, sem lét þau ummæli falla í fjölmiðlum að hann teldi óæskilegt að þiggja fé frá Sádí-Arabíu. Fjallað er um málið í fréttaskýringu á Kjarnanum í fyrra þar sem segir meðal annars:

„Þann 5. mars 2015 afhenti nýr sendiherra Sádi-Arabíu í Stokkhólmi, Ibrahim S.I. Alibrahim, trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum á fundi með forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, en hann er einnig sendiherra gangvart Íslandi. Á fundinum gat Alibrahim þess að Sádí-Arabía hyggðist styrkja byggingu mosku í Reykjavík og jafnframt að hann hefði skoðað land í Sogamýri sem úthlutað hefur verið til moskubyggingar í Reykjavík.

Forsetaembættið sagði frá heimsókninni á vef sínum og allir helstu fjölmðilar á Íslandi tóku málið upp. Margir höfðu af þessu nokkrar áhyggjur, ekki síst í ljósi þess að stutt var síðan hryðjuverkaárásir voru gerðar í París og Kaupmannahöfn og hætta á hryðjuverkum á Íslandi hafði farið úr því að vera talin í lítil í að teljast í að vera í meðallagi. Íslam í Evrópu var í eldlínunni.

Ekki löngu eftir heimsókn Ibrahim S.I. Alibrahim lét forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, þau orð falla í viðtölum við fjölmiðla að hann teldi óæskilegt að þiggja fé frá Sádí-Arabíu og að breyta þyrfti umræðunni og nálgun Íslendinga á það verkefni að finna íslam farveg á Íslandi. Í viðtali við Bítið á Bylgjunni þann 17. nóvember 2015 sagði forsetinn m.a.: „Þessi ákvörðun erlends ríkis að fara að skipta sér af trúarbrögðum á Íslandi á sama hátt og það hefur gert vítt og breytt um veröldina, fjármagnað skóla þar sem öfgakennt islam er ræktað, og ungir karlmenn aldir upp í þeim viðhorfum, er það áminning til okkar Íslendinga að við verðum að hefja nýja umræðu.““

Sverrir Agnarsson
Sverrir Agnarsson

Sverrir: Þjóðinni stafar engin hætta af Ahmad

Sverrir Agnarsson, meðlimur í Félagi íslenskra múslima og gagnfróður maður um Íslam, þekkir Ahmad Seddeeq vel og segir hann engan öfgamann:

„Þjóðinni stafar engin hætta af Ahmad. Hann er ljúfmenni, hógvær, kurteis og tilllitsamur. Hann er enginn öfgaklerkur, heldur velmenntaður Egypti frá Al Azhar. Hann er íhaldssamur en enginn Sáda-klerkur í dularklæðum og enginn Wahabi-dómari. Íhaldssamir ímamar eins og Ahmed hafa alltaf talað með hryllingi um hryðjuverk og moska eins og hann þjónar er besta vörnin gegn íslömskum öfgamönnum.”

Sverrir gefur hins vegar ekkert fyrir tal Ahmads um að hryðjuverkaárásirnar í London gætu verið sviðsettar að hluta:
„Auðvitað eru slík ummæli fjarstæða sem ég nenni ekki einu sinni að ræða – ekki einu sinni Houdini gæti sviðsett svona atburð. En afhverju þessi heiftarlegu viðbrögð – af hverju brostu ekki menn bara út í annað og sögðu á íslensku: Hvert er er maðurinn að fara? Ef einhver vill eyða í það tíma að útskýra fyrir Ahmad hvernig svona myndbönd eru gerð er ég viss um að hann sér ljósið og hættir svona tali.”

Sverrir segir jafnframt að hryðjuverk og annað ofbeldi séu fjarri sönnum múslimum:
„Ég tala fyrir hönd 99,99% múslima þegar ég lýsi algjöru skilningleysi á hugmyndinni um hryðjuverk í nafni Íslam. Í múslimalöndunum fyllast íbúarnir óhugnaði við svona fréttir og það fyrsta sem þeim dettur í hug er: Þetta getur ekki verið múslimi – það hlýtur að vera einhver sem hatar Íslam sem gerir svona.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Faðir lýsir ófremdarástandi í leiguhúsnæði Félagsbústaða í Írabakka – Box undir sprautunálar rétt hjá barnaleikvelli

Faðir lýsir ófremdarástandi í leiguhúsnæði Félagsbústaða í Írabakka – Box undir sprautunálar rétt hjá barnaleikvelli
Fréttir
Í gær

Ásthildur hissa – „Ekki í vafa um að bæjaryfirvöld á Akureyri munu hafna því alfarið að fjarlægja hjörtun“

Ásthildur hissa – „Ekki í vafa um að bæjaryfirvöld á Akureyri munu hafna því alfarið að fjarlægja hjörtun“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

OECD urðar yfir íslenska menntakerfið í nýrri skýrslu

OECD urðar yfir íslenska menntakerfið í nýrri skýrslu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Synjað um greiðsluþátttöku vegna sjúkdóms sem leggst á getnaðarliminn: Grét af kvölum – „Hreinlega efni í Kveik á RÚV“

Synjað um greiðsluþátttöku vegna sjúkdóms sem leggst á getnaðarliminn: Grét af kvölum – „Hreinlega efni í Kveik á RÚV“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Trump er öskureiður og krefst breytinga – „Þetta kostar landið okkar milljarða“

Trump er öskureiður og krefst breytinga – „Þetta kostar landið okkar milljarða“