fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Fréttir

Tara minnkaði brjóstin í beinni á Snapchat

Tara Brekkan Pétursdóttir fór í brjóstaminnkun á miðvikudaginn. Hún ætlar að sýna það í beinni þegar hún fjarlægir sáraumbúðirnar.

Hjálmar Friðriksson
Mánudaginn 29. maí 2017 12:46

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tara Brekkan Pétursdóttir hefur undanfarna daga leyft vinum sínum á Snapchat að fylgjast með bataferli hennar eftir að hún fór í brjóstaminnkun á miðvikudaginn. Hún segist með þessu vilja opna á umræðuna um brjóstaminnkun. Sáraumbúðir hennar verða fjarlægðar á morgun og hyggst hún sýna það í beinni á Snapchat. „Ég er ótrúlega ánægð, ég er í skýjunum og finn bara strax hvað þetta léttir á öllu. Þetta gekk rosalega vel,“ segir Tara í samtali við DV.

Tara segir að konur eigi ekki að skammast sín fyrir að þurfa að fara í brjóstaminnkun. „Maður á ekki að skammast sín fyrir þetta. Ég er búin að heyra mikið af sögum frá stelpum sem eru með náttúrulega stór brjóst. Til dæmis þegar allar stelpur í skóla eru í hlýrabol, þá eru kennarar að biðja þær sem eru með áberandi brjóstaskoru að hylja sig. Af því að þetta æsir strákanna, sem er auðvitað fáránlegt. Það er mikið um það að stelpur með stór brjóst skammist sín fyrir það. Ég er að gera þetta vegna þess að þetta fer illa með bakið á mér, ekki af því að ég skammast mín fyrir að vera með stór brjóst,“ segir Tara.

Hún bendir á að brjóstaminnkun sé almennt ekki niðurgreidd af ríkinu og þurfti hún að borga ríflega hálfa milljón króna fyrir aðgerðina. „Ég er að borga fyrir þetta sjálf. Það er fáránlegt. Það þarf að vera svo svakalega mikið til að þetta sé niðurgreitt. Það eru svo margar stelpur sem að þurfa á þessu að halda á Íslandi. Þess vegna vildi ég opna fyrir umræðuna á Snapchat. Það eru ótrúlega margar stelpur í sömu stöðu og ég. Ég hef fengið rosalega góð viðbrögð. Stelpurnar eru að segja mér að þær þurfi að grennast svo mikið til að fá þetta niðurgreitt. Þær þurfa að vera í ákveðinni þyngd og frekar grannar, þær mega ekki vera venjulegar,“ segir Tara.

Hún segir það algengt að stelpur séu lagðar í einelti vegna brjóstastærðar. „Ég hef fengið fullt af sögum sendar til mín. Það eru rosalega margar stelpur sem tengja við þetta. Sumar þora ekki í sund. Þetta er vandamál hjá ungum stúlkum í dag,“ segir Tara. Líkt og fyrr segir mun Tara fjarlægja sáraumbúðirnar á morgun og verður hægt að fylgjast með því á Snapchati hennar: Tara_makeupart.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Faðir lýsir ófremdarástandi í leiguhúsnæði Félagsbústaða í Írabakka – Box undir sprautunálar rétt hjá barnaleikvelli

Faðir lýsir ófremdarástandi í leiguhúsnæði Félagsbústaða í Írabakka – Box undir sprautunálar rétt hjá barnaleikvelli
Fréttir
Í gær

Ásthildur hissa – „Ekki í vafa um að bæjaryfirvöld á Akureyri munu hafna því alfarið að fjarlægja hjörtun“

Ásthildur hissa – „Ekki í vafa um að bæjaryfirvöld á Akureyri munu hafna því alfarið að fjarlægja hjörtun“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

OECD urðar yfir íslenska menntakerfið í nýrri skýrslu

OECD urðar yfir íslenska menntakerfið í nýrri skýrslu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Synjað um greiðsluþátttöku vegna sjúkdóms sem leggst á getnaðarliminn: Grét af kvölum – „Hreinlega efni í Kveik á RÚV“

Synjað um greiðsluþátttöku vegna sjúkdóms sem leggst á getnaðarliminn: Grét af kvölum – „Hreinlega efni í Kveik á RÚV“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Trump er öskureiður og krefst breytinga – „Þetta kostar landið okkar milljarða“

Trump er öskureiður og krefst breytinga – „Þetta kostar landið okkar milljarða“