Meirihluti erfingja telur eignir vanta í dánarbúið – Kastljós fjallar um málið í kvöld
Erlent rannsóknarfyrirtæki verður fengið til að leita að týndum sjóðum hjónanna Ingvars Helgasonar og Sigríðar Guðmundsdóttur. Þetta kemur fram á vef RÚV en fjallað verður um málið í Kastljósi í kvöld.
Í umfjölluninni kemur fram að upplýsingar úr Panama-skjölunum um stofnun aflandsfélags Júlíusar Vífils Ingvarssonar, eins erfingjanna og fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, hafi sett málið í nýtt samhengi að mati systkina hans.
Fjallað verður um þetta í Kastljósi og greint frá nýjum upplýsingum sem komið hafa fram í málinu eftir að fjallað var um aflandsfélag Júlíusar Vífils. Hægt er að sjá brot úr þættinum hér.
Eins og greint var frá fyrir skemmstu stofnaði Júlíus vörslusjóð í Panama og bankareikning í Sviss árið 2014. Júlíus sagði að félagið hefði verið stofnað til að halda utan um reikning hans í bankanum Julius Bär í Sviss.
Ingvar Helgason lést árið 1999 og byggði upp samnefnt fyrirtæki sem var umsvifamikið í innflutningi á bifreiðum og búvélum. Fyrirtæki hjónanna voru stöndug og var Ingvar í hópi auðugustu manna landsins. Í frétt RÚV er það rifjað upp að fimm árum eftir andlát hans hafi fyrirtæki hans, Ingvar Helgason hf. og Bílheimar hf. verið seld úr höndum erfingja hans fyrir nokkrar milljónir króna. Var salan framkvæmd til að forða fyrirtækjunum frá gjaldþroti.
Efingjar þeirra Ingvars og Sigríðar, sem féll frá á síðasta ári, standa nú í deilum um skiptingu dánarbúsins og snúa þær að eignum sem meirihluti erfingjanna telur vanta í dánarbúið, samkvæmt frétt Kastljóss á vef RÚV. Um sé að ræða varasjóð Ingvars, greiðslur sem hann safnaði á reikninga í erlendum banka vegna viðskipta sem hann átti við erlenda framleiðendur um áratugaskeið. Reikninga sem Sigríður reyndi að leita að eftir andlát Ingvars, en án árangurs.
Samkvæmt frétt Kastljóssins nam upphæðin á sínum tíma nokkur hundruð milljónum króna. Sú upphæð væri í dag vel á annan milljarð króna að minnsta kosti.