fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Fréttir

Árni Páll hefur ekki gert upp hug sinn

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, með hugann við annað en formannsframboð

Ritstjórn DV
Laugardaginn 5. mars 2016 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Nei, ég ætla bara að bíða með að velta því mikið fyrir mér,“ segir Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, aðspurður hvort hann hafi tekið ákvörðun um hvort hann bjóði sig fram til formennsku á ný á landsfundi flokksins í júní næstkomandi. Framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar ákvað að flýta landsfundinum í síðasta mánuði.

„Við erum á fullu núna í samtali innan flokks í framhaldi bréfsins sem ég sendi. Það eru fundir úti um allt land sem ganga mjög vel. Ég ætla að einbeita mér að því næstu vikur,“ bætir hann við í samtali við DV. Bréfið sem hann vísar til sendi hann á flokksfélaga sína, í kjölfar ákvörðunar framkvæmdastjórnarinnar um að flýta landsfundi, þar sem hann kallaði eftir uppgjöri flokksins við mistök sín á umliðnum árum.

Fylgi Samfylkingarinnar hefur hríðfallið á undanförnum misserum og mældist aðeins 9,7 prósent í könnun Gallup þann 29. febrúar síðastliðinn. Árni vill þó ekki meina að hann liggi sérstaklega undir feldi varðandi framhaldið. „Ég er bara úti um allar trissur og ekkert að hugsa um þetta. Ég geri það bara seinna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Faðir lýsir ófremdarástandi í leiguhúsnæði Félagsbústaða í Írabakka – Box undir sprautunálar rétt hjá barnaleikvelli

Faðir lýsir ófremdarástandi í leiguhúsnæði Félagsbústaða í Írabakka – Box undir sprautunálar rétt hjá barnaleikvelli
Fréttir
Í gær

Ásthildur hissa – „Ekki í vafa um að bæjaryfirvöld á Akureyri munu hafna því alfarið að fjarlægja hjörtun“

Ásthildur hissa – „Ekki í vafa um að bæjaryfirvöld á Akureyri munu hafna því alfarið að fjarlægja hjörtun“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

OECD urðar yfir íslenska menntakerfið í nýrri skýrslu

OECD urðar yfir íslenska menntakerfið í nýrri skýrslu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Synjað um greiðsluþátttöku vegna sjúkdóms sem leggst á getnaðarliminn: Grét af kvölum – „Hreinlega efni í Kveik á RÚV“

Synjað um greiðsluþátttöku vegna sjúkdóms sem leggst á getnaðarliminn: Grét af kvölum – „Hreinlega efni í Kveik á RÚV“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Trump er öskureiður og krefst breytinga – „Þetta kostar landið okkar milljarða“

Trump er öskureiður og krefst breytinga – „Þetta kostar landið okkar milljarða“