fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Fréttir

Sjálfsskaði Herdísar byrjaði með einni lítilli rispu: Óhuggulegar myndir

„Þetta er eins mikil fíkn og sígarettur“

Auður Ösp
Mánudaginn 4. janúar 2016 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég ætlaði aldrei að gera þetta aftur en svo virkaði þetta. Svo ég prófaði einu sinni en. Svo bara tvisvar í viðbót. Og eitt hérna og eitt þarna,“ segir hin 17 ára gamla Herdís Hlíf Þorvaldsdóttir en hún hefur glímt við sjálfskaðandi hegðun í rúm 4 ár. Handleggir hennar eru í dag þaktir örum sem sum hver eru mjög djúp. Hún segist vona að sín saga verði öðrum víti til varnaðar.

Rætt er við Herdísi í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Fram kemur á Vísi að Herdís setti frásögn sína upprunalega inn á facebook í gærkvöldi. Þar segir hún meðal annars.

„Ég er ekki að þessu til að fá hjörtu í komment heldur meira eins og forvörn, því að þó að þetta hljómi kanski ekki þannig þá er þetta eins mikil fíkn eins og sígarettur, ef ekki verri.“

Herdís segir sjálfskaðann hafa byrjað með einni lítilli rispu þegar hún var 13 ára gömul en um svipað leyti greindist hún með þunglyndi. Hendur hennar og fætir eru nú þaktir örum eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. „Sum eru saumuð og sum eru það ekki, sum eru hvít og önnur eru rauð.“

Herdís segist hafa prófað að valda sér skaða vegna þess að hún var tilbúin til að gera hvað sem er til að láta innri sársauka sinn þagna. Það hafi síðan farið að vinda upp á sig og að lokum orðið að óstjórnanlegri fíkn.

„Ég er að skrifa þetta því ég veit að það eru svo margir að fikta við þetta sem eru ekki komnir eins djúpt og ég og ég vil hafa þetta sem forvörn fyrir stelpur sem líður illa. Þetta er ekki lausnin. Lausnin er alltaf að tala um tilfinningarnar,“ segir Herdís jafnframt í færslu sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Faðir lýsir ófremdarástandi í leiguhúsnæði Félagsbústaða í Írabakka – Box undir sprautunálar rétt hjá barnaleikvelli

Faðir lýsir ófremdarástandi í leiguhúsnæði Félagsbústaða í Írabakka – Box undir sprautunálar rétt hjá barnaleikvelli
Fréttir
Í gær

Ásthildur hissa – „Ekki í vafa um að bæjaryfirvöld á Akureyri munu hafna því alfarið að fjarlægja hjörtun“

Ásthildur hissa – „Ekki í vafa um að bæjaryfirvöld á Akureyri munu hafna því alfarið að fjarlægja hjörtun“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

OECD urðar yfir íslenska menntakerfið í nýrri skýrslu

OECD urðar yfir íslenska menntakerfið í nýrri skýrslu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Synjað um greiðsluþátttöku vegna sjúkdóms sem leggst á getnaðarliminn: Grét af kvölum – „Hreinlega efni í Kveik á RÚV“

Synjað um greiðsluþátttöku vegna sjúkdóms sem leggst á getnaðarliminn: Grét af kvölum – „Hreinlega efni í Kveik á RÚV“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Trump er öskureiður og krefst breytinga – „Þetta kostar landið okkar milljarða“

Trump er öskureiður og krefst breytinga – „Þetta kostar landið okkar milljarða“