fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025

49 ára móðir hóf ólíklegan starfsferill eftir að hún byrjaði á breytingaskeiðinu

Ritstjórn Bleikt
Miðvikudaginn 11. mars 2020 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

49 ára móðir var að upplifa verulega slæm einkenni á breytingaskeiðinu og  þurfti að taka sér veikindaleyfi í vinnunni. Fljótlega hóf hún nýjan starfsferill sem hún hafði aldrei hugleitt áður. Að selja djarfar myndir af sér á netinu. Nú hugsar hún um að hætta alfarið í gömlu vinnunni og einbeita sér að nýja og spennandi starfinu.

Toni Galloway er tveggja barna móðir frá Skotlandi. Í nóvember í fyrra þurfti hún að taka leyfi í vinnunni. Hún var byrjuð á breytingaskeiðinu og einkennin voru svo mikil að hún gat ekki unnið. Hún fékk slæm hitaköst og það leið reglulega yfir hana vegna járnskorts.

Þetta var erfiður tími fyrir Toni en heilsuvandamálin buðu upp á ný tækifæri. Toni byrjaði að selja djarfar myndir af sér á netinu í janúar á þessu ári. Í samtali við Daily Mail segir hún að hún hafi þénað talsvert af myndasölunni og að aðdáendahópur hennar fari ört stækkandi.

Að sögn Toni eru þetta ekki nektarmyndir sem hún er að selja.

„Nekt er gefin í skyn en það sést ekki allt. Ég er venjulega með eitthvað fyrir einkastöðunum eins og hatt, eitthvað sem skilur eitthvað eftir fyrir ímyndunaraflið. Ég hef þetta smekklegt og sýni aldrei á milli fótleggjanna,“ segir hún.

Toni er stolt af því sem hún gerir og hefur sjaldan verið eins sjálfsörugg. Hún segir breytingaskeiðið ekkert breyta því að hún sé kynþokkafull.

„Ég vil sýna öðrum konum að það er aldrei of seint og þú þarft ekki að vera tágrönn eða hávaxin. Líkami minn er eitthvað sem ég ætti að vera stolt af,“ segir hún.

Hún er nú alvarlega að hugleiða að segja upp starfi sínu sem umönnunaraðili á elliheimili og einbeita sér að því að selja djarfar myndir af sér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Þorsteinn spurður út í háværar sögusagnir

Þorsteinn spurður út í háværar sögusagnir
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Græðir þú á árangri landsliðsins?

Græðir þú á árangri landsliðsins?
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Segir stjórnarandstöðuna leggja fæð á Ingu Sæland og hindra framfaramál með botnlausu málþófi

Segir stjórnarandstöðuna leggja fæð á Ingu Sæland og hindra framfaramál með botnlausu málþófi
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Tottenham reynir að kaupa Ganverjann

Tottenham reynir að kaupa Ganverjann
Eyjan
Fyrir 11 klukkutímum

Orðið á götunni: Fá milljarð gefins á ári en greiða 282 milljónir í veiðigjöld

Orðið á götunni: Fá milljarð gefins á ári en greiða 282 milljónir í veiðigjöld
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

United hefur áhuga á því að kaupa spænska miðjumann PSG

United hefur áhuga á því að kaupa spænska miðjumann PSG
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Selfoss staðfestir komu Jóns Daða

Selfoss staðfestir komu Jóns Daða

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.