Eins og við vitum á Kylie Jenner mikið af peningum. Ógeðslega mikið af peningum. Svo mikið af peningum að hún getur keypt sér nákvæmlega allt sem hana langar í. Og það gerir hún svo sannarlega.
Kylie á allavega fjórar glæsivillur, gríðarlega stórt safn lúxusbifreiða og merkjatöskur að andvirði milljón dala. Nýjasta dótið er Rolls Royce Wraith sem Kylie sérpantaði fyrir ári og er loksins kominn og stendur nú hnarreistur fyrir framan 3.6 milljón dala lúxusvilluna hennar í Holmby Hills. Rollsinn góði er sérhannaður að smekk Kylie og er sælgætisbleikur að innan með sérstakt sæti fyrir tveggja ára gamla dóttur hennar, Stormi.
Í hurðarfalsinum er grafið „Mamma Stormi“ svona ef einhver skildi ruglast á bílnum hennar og sínum eigin bleika Rolls. Kylie lýsir bílnum sem „mömmubíl“ og verðið á drossíunni ku vera um 320.000 dali eða sem samsvarar tæpum 44 milljónum íslenskra króna.
Bílasafnið sem Kylie á fyrir er heldur ekkert slor en þar má meðal annars finna Lamborghini Aventador sem kostar um 350.000 dali, Bentley Bentayga sem kostar 129.000 dali og Ferrari 458 Spyder sem kostar 222.000 dali. Við skulum svo ekki gleyma Bugatti Chiron sem kostar þrjár milljónir dala.