fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Greindist með krabbamein á lokastigi og fór frá eiginmanninum – Hefur sofið hjá yfir 180 karlmönnum

Ritstjórn Bleikt
Fimmtudaginn 5. mars 2020 09:09

Nikki og Molly.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ef þú vissir að þú ættir stuttan tíma eftir á lífi, hvernig myndirðu eyða honum?

Það er spurningin sem Nikki Boyer kastar fram í hlaðvarpsþættinum Dying for Sex – þáttaröð í sex hlutum. Í þættinum ræðir Nikki við bestu vinkonu sína Molly, sem var greind með brjóstakrabbamein á lokastigi 41 árs gömul. Hún ákvað að segja skilið við óhamingjusamt hjónaband í kjölfarið og kanna kynferði sitt.

Fékk fyrst krabbamein 2011

Molly hafði áður glímt við krabbamein árið 2011.

„Ég og fyrrverandi maðurinn minn glímdum við ýmis vandamál, kynferðislega, áður en ég greindist með krabbamein árið 2011,“ segir Molly.

„Rétt áður en ég var greind með krabbamein var ég að leita að einhverjum leiðum til að krydda upp á kynlífið okkar, og þá birtist krabbameinið.“

Hjónin náðu aldrei að vinna úr vandamálunum í svefnherberginu eftir fyrstu krabbameinsmeðferðina, sem samanstóð af tvöföldu brjóstnámi, geislameðferð, lyfjameðferð og enduruppbyggingu brjósta. Þau voru áfram saman, þar til Molly var greind í annað skipti.

Lyf sem breyttu öllu

Molly var þá sett á ný lyf sem komu henni verulega á óvart. Ólíkt geisla- og lyfjameðferð fór lyfið ekki illa með líkama hennar. Að sögn Molly leið henni eins og hún væri ekki einu sinni veik. Í þokkabót fór kynhvöt hennar upp úr öllu valdi.

„Ég var alltaf gröð. Líkami minn þarfnaðist snertingar,“ segir hún.

Molly ákvað að fara frá eiginmanni sínum og henda sér í stefnumótamenninguna. Síðan þá hefur hún upplifað óteljandi kynferðisleg ævintýri sem hún deilir með Nikki í þættinum.

Masókismi og útfarastjóri

Molly segir frá því þegar hún svaf hjá tvífara Ryan Reynolds sem fýlaði masókisma, nuddið sem endaði skemmtilega, vandræðalegt bílakynlíf með gaur sem gat ekki haldið standpínu og útfarastjórinn sem hún kyssti á meðan hann var málaður eins og trúður.

Í einum þættinum reyna þær að telja hversu mörgum karlmönnum Molly hefur sofið hjá. Þær hætta að telja við 183.

„Kynlíf lætur mér líða eins og ég sé lifandi, og þetta er frábær truflun frá veikindum mínum,“ segir Molly.

Fyrstu fimm þættirnir eru komnir út og sá síðasti kemur út 11. mars næstkomandi. Þú getur hlustað á þá á Spotify eða hvar sem þú hlustar á hlaðvörp.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Liverpool taki ekki í mál að selja

Liverpool taki ekki í mál að selja
Pressan
Fyrir 2 klukkutímum

Íranir gerðu árás á eina stærstu olíuhreinsunarstöð heims – „Veruleg stigmögnun“

Íranir gerðu árás á eina stærstu olíuhreinsunarstöð heims – „Veruleg stigmögnun“
Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Allt að 30 ára bið eftir geðlæknisþjónustu – ,,Það ræður ekkert kerfi við þetta”

Allt að 30 ára bið eftir geðlæknisþjónustu – ,,Það ræður ekkert kerfi við þetta”
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Myndband: Uppákoma í Garðabæ um helgina vekur athygli – Hvað sagði Samúel sem gerði allt vitlaust?

Myndband: Uppákoma í Garðabæ um helgina vekur athygli – Hvað sagði Samúel sem gerði allt vitlaust?
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Warnock snýr aftur í þjálfun

Warnock snýr aftur í þjálfun
Fókus
Fyrir 5 klukkutímum

Hlaut verðlaun rúmum mánuði eftir andlát sitt

Hlaut verðlaun rúmum mánuði eftir andlát sitt
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Davíð Oddsson er látinn

Davíð Oddsson er látinn
Pressan
Fyrir 16 klukkutímum

Hvíti dauðinn – Þögli Finninn sem Rússar gleyma ekki

Hvíti dauðinn – Þögli Finninn sem Rússar gleyma ekki

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.