fbpx
Fimmtudagur 18.september 2025

Spáð í tarot Sigmundar Davíðs: Öðlast valdið sem hann þráir fyrr en síðar

Ritstjórn Bleikt
Sunnudaginn 4. ágúst 2019 10:00

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, hefur yfir miklu að gleðjast þessa dagana enda hefur fylgi flokks hans aukist mikið síðustu mánuði. DV ákvað því að spá í tarotspil fyrir formanninn og sjá hvað framtíðin ber í skauti sér.

Öflugar orkustöðvar

Fyrsta spilið sem kemur upp er Sólin. Sólin táknar mikla sköpun og gleði, sem og manneskju sem á stóra drauma og er jákvæð með eindæmum. Sigmundur þarf að huga að jafnvæginu innra með sér og muna að það er kærleikur sem skiptir mestu máli í samskiptum í samfélagi manna. Orkustöðvar Sigmundar eru öflugar og óskir hans um áframhaldandi uppgang Miðflokksins eru raunhæfar. Draumar hans verða að veruleika fyrr en hann grunar og hann mun öðlast það vald sem hann þráir innan skamms.

Þjáningar í æsku

Næsta spil er 9 stafir, en talan níu sýnir Sigmundi svart á hvítu að gleðin þarf að vera viðvarandi í hans lífi og störfum því of mikil alvara þjónar ekki neinum tilgangi. Spilið táknar einnig einhvers konar þjáningar í æsku eða vandamál sem efla Sigmund í leit hans að árangri og velgengni. 9 stafir tákna einnig að Sigmundur þarf að læra af mistökunum til að ná þeim árangri sem hann dreymir um.

Aðgangur að auðæfum

Síðasta spilið sem kemur upp fyrir Sigmund er 7 mynt. Þar er enn farið yfir fortíðina og ítrekað að Sigmundur megi ekki láta fortíðina koma í veg fyrir velgengni framtíðarinnar. Honum finnst eins og allir séu á móti honum og sér oft ekki hversu góðir tímar eru framundan. Heppnin leikur við Sigmund og óskir hans rætast en talan sjö staðfestir velferð hans. Alsæla birtist og leggst bókstaflega að fótum hans og mun Sigmundur fá aðgang að auðæfum fyrr en síðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 klukkutímum

Orðið á götunni: Hvernig tæki Kjartan fjármál föstum tökum? Glímuskjálfti einkennir minnihlutann í borginni

Orðið á götunni: Hvernig tæki Kjartan fjármál föstum tökum? Glímuskjálfti einkennir minnihlutann í borginni
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Mögnuð tölfræði Van Dijk hjá Liverpool

Mögnuð tölfræði Van Dijk hjá Liverpool
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Strákarnir okkar standa í stað eftir tvo frábæra leiki

Strákarnir okkar standa í stað eftir tvo frábæra leiki
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Konungsfjölskyldan gagnrýnd fyrir fordæmalausa sýndarmennsku í þágu Trump – „Þetta er þjóðarskömm“

Konungsfjölskyldan gagnrýnd fyrir fordæmalausa sýndarmennsku í þágu Trump – „Þetta er þjóðarskömm“
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Bergvin segist útilokaður af RÚV vegna dóms um kynferðislega áreitni – „Miklu þyngra að vera dæmdur af „dómstól götunnar““

Bergvin segist útilokaður af RÚV vegna dóms um kynferðislega áreitni – „Miklu þyngra að vera dæmdur af „dómstól götunnar““
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Aftur refsar UEFA Crystal Palace

Aftur refsar UEFA Crystal Palace

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.