fbpx
Föstudagur 27.júní 2025

Sveppasýking algengari í prófatíð – „Það eru kraumandi kynfæri að koma núna á markaðinn“

Ritstjórn Bleikt
Mánudaginn 13. maí 2019 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Í prófum er maður líklegri til að borða extra óhollt, sofa minna og vera mega stressaður. Hjá sumum sem eru viðkvæmir fyrir sveppasýkingum á hún til að blossa upp,” segir kynfræðingurinn Sigga Dögg í Morgunþættinum Múslí en hugur hennar er hjá þeim námsmönnum sem hafa verið í prófum að undanförnu.

Prófatíð hefur nú staðið yfir hjá mörgum síðustu vikur og segir kynfræðingurinn að törninni fylgi meiri hætta á sveppasýkingum sökum þess hvernig streita veikir ónæmiskerfið. „Það eru kraumandi kynfæri að koma núna á markaðinn,“ segir hún hress.

Samkvæmt kynfræðingnum geta sýkingar og þurrkur á kynfærum leitt til sársaukafulls kynlíf og sé nauðsynlegt að vera meðvitaður um úrræði. „Það þarf fyrst að læra að útiloka ákveðna hluti og þá er hægt að vinna meira með það,” segir Sigga Dögg. „Þegar fólk upplifir svona tekur það hlutina svolítið inn á sig og hugsi: „Ó mæ god, hvað þýðir þetta?” Verður þetta alltaf svona? Er það bara eitt skipti? Skemmdi ég eitthvað? Gerði ég eitthvað?”

Sigga Dögg segir það vera algengara hjá stelpum og þykir strákar síður líklegri til að tala um sársauka í kynlífi. Þá segist hún vera lang oftast spurð út í píkusársauka í kynlífi og segir það algengt vandamál. Segir hún líka að það sé mikilvægt að fólk hugsi um hvort að það sé hægt að gera breytingar á kynlífinu til að minnka sársaukann. Til dæmis er mörgum sem finnst ekkert sársaukafullt að stunda munnmök þó „typpi-í-píku-kynlíf” sé vont.

Sjá einnig: Sigga Dögg brást vinkonu 

„Það er mikilvægt að nota ekki sápu á kynfærin og fara til læknis ef grunur liggur á sýkingu, þá þurfi báðir aðilar sem stunda kynlíf að taka lyf við sveppasýkingunni, annars fer hún ekki,” segir Sigga Dögg.

„Smurning skiptir svo sjúklega miklu máli. Sleipiefni getur stundum lagað sársauka þó það sé alls ekki lausnin við öllu þá er það góður staður til að byrja á,” bætir hún við hún ráðleggur fólki alltaf að nota sleipiefni og muna að prófa það á vörunum eða í munni áður en það er sett á kynfærin.

„Fólk þarf að læra inn á sinn líkama og tala um það við aðilann sem þau stunda kynlíf með.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Tottenham lögsækir Ratcliffe og vilja fá 1,8 milljarð

Tottenham lögsækir Ratcliffe og vilja fá 1,8 milljarð
EyjanFastir pennar
Fyrir 11 klukkutímum

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Margir furða sig á niðurstöðu KSÍ – „Það er fyrir mér algjörlega óskiljanlegt“

Margir furða sig á niðurstöðu KSÍ – „Það er fyrir mér algjörlega óskiljanlegt“
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Arsenal reynir við varnarmann en fær samkeppni

Arsenal reynir við varnarmann en fær samkeppni
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Ronaldo skrifar undar samning og mun spila til allavega 42 ára aldurs

Ronaldo skrifar undar samning og mun spila til allavega 42 ára aldurs
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Landsréttur sneri við dómi í meiðyrðamáli Aðalsteins gegn þekktum Moggabloggara

Landsréttur sneri við dómi í meiðyrðamáli Aðalsteins gegn þekktum Moggabloggara

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.