Í meðfylgjandi myndbandi fer þjálfarinn Patrick Murphy yfir það hvernig hann þjálfaði leikarann Zac Efron fyrir hlutverk sitt í Baywatch.
Patrick hefur verið í rúmlega tuttugu ár í bransanum og komið haug af stjörnum í sitt besta form, þar á meðal Tobey McGuire og Jason Segal.
Það er því ekki skrýtið að Zac hafi leitað til hans þegar hann þurfti að koma sér í þrusuform fyrir kvikmyndina Baywatch, þar sem hann er ber að ofan meirihlutann af myndinni.
Í myndbandinu fer Patrick ítarlega yfir æfingarnar sem hann gerði með leikaranum og lítið mál að apa eftir þessu í ræktinni.