fbpx
Fimmtudagur 31.júlí 2025

Sigurjón greindist með eitlakrabbamein og þarf á hjálp að halda

Aníta Estíva Harðardóttir
Miðvikudaginn 28. mars 2018 13:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurjón Þór Widnes Friðriksson greindist með eitlakrabbamein af gerðinni Hodgkins fyrir um tveimur vikum síðan. Ekki er vitað á hvaða stigi krabbameinið er eða hversu dreift það er um líkamann en Sigurjón og kærasta hans Guðlaug Stella Hafsteinsdóttir eru um þessar mundir stödd í Danmörku þar sem Sigurjón fer í jáeindaskanna þar sem enn er ekki boðið upp á slíkt á Íslandi.

„Við erum núna úti að Danmörku og hann er að fara í skannann í þessum töluðu orðum. Þá kemur í ljós hversu mikið meinið hefur dreift sér og hversu margar lyfjagjafir hann þarf að fara í. Við eigum að gera ráð fyrir allavegana ári í þessa meðferð,“

segir Guðlaug Stella í samtali við Bleikt.

Tryggingafélagið greiðir aðeins annan farmiðann

Bæði Sigurjón og Guðlaug eru í námi og hafa þau því ekki fjárhagslega burði til þess að standa undir meðferðinni. Tryggingastofnun greiddi ekki nema annan farmiðann fyrir þau til Danmerkur og í kjölfar niðurstaðna úr jáeindaskannanum mun bætast við mikill kostnaður vegna lyfjameðferðar og mögulega geislameðferðar.

„Við erum bæði í skóla og áttum að fara á samning þar sem við fáum nema laun í sumar. Ég fer á minn samning sem snyrtifræðinemi en hann þarf að bíða með sinn samning þar til hann hefur náð sér.“

Sigurjón er fæddur árið 1985 og er því mjög ungur og á allt lífið fram undan.

Fer í aðgerð á föstudaginn

„Hann fer í smá aðgerð á föstudaginn þar sem settur verður lyfjabrunnur í hann svo hann geti fengið lyf við krabbameininu.“

Stofnaður hefur verið styrktarreikningur fyrir Sigurjón fyrir þá sem sjá sér fært að styrkja þetta unga par í þessari erfiðu lífsreynslu:

Reikningsnúmer: 0370-13-002894
Kennitala: 181194-3329

Margt smátt gerir eitt stórt og skiptir hver króna máli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

„Þetta er samfélag sem byggir mann upp“

„Þetta er samfélag sem byggir mann upp“
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Jóhann lýsir stríðsástandi eftir erfiða ákvörðun – „Það voru allir brjálaðir“

Jóhann lýsir stríðsástandi eftir erfiða ákvörðun – „Það voru allir brjálaðir“
Pressan
Fyrir 5 klukkutímum

Lögreglan varar við sadískum Internethópi – „Óhugnaður í nýjum hæðum“

Lögreglan varar við sadískum Internethópi – „Óhugnaður í nýjum hæðum“
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Isak löngu búinn að samþykkja samning Liverpool

Isak löngu búinn að samþykkja samning Liverpool
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Fyrsti leikur Gyokores er líklega á morgun – Fær að kynnast grannaslagnum

Fyrsti leikur Gyokores er líklega á morgun – Fær að kynnast grannaslagnum
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Jón Trausti svarar Bjarnheiði fullum hálsi – „Ferðaþjónusta er ekki einkamál þeirra sem starfrækja hana“

Jón Trausti svarar Bjarnheiði fullum hálsi – „Ferðaþjónusta er ekki einkamál þeirra sem starfrækja hana“
Fókus
Fyrir 16 klukkutímum

Lína Birgitta lét skvísurnar svitna á glæsilegri þakæfingu í New York – „Það var tekið vel á því“

Lína Birgitta lét skvísurnar svitna á glæsilegri þakæfingu í New York – „Það var tekið vel á því“
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Súlunesmálið: Margrét sögð hafa misþyrmt foreldrum sínum klukkustundum saman

Súlunesmálið: Margrét sögð hafa misþyrmt foreldrum sínum klukkustundum saman

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.