fbpx
Miðvikudagur 05.nóvember 2025

Myndband: Mánudagsbit – Syngjandi i tannlæknastólnum

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 8. janúar 2018 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mörgum finnst ferðir til tannlæknis eitt það versta sem þeir gera, kvíðahnúturinn í maganum magnast eftir því sem styttist í tannlæknatímann og helst myndi maður vilja hverfa ofan í jörðina frekar en setjast í stólinn.

En svo áður en maður veit af, er þetta búið, bursta og skola og maður borgar og heldur brosandi út í daginn, með betra og bjartara bit og bros en fyrir tímann.

Mánudagsbit, eða Monday Bites, eins og þau heita á frummálinu eru myndbönd sem tannlæknastofa í Norður Karólínu í Bandaríkjunum birtir alla mánudaga á Facebooksíðu sinni. Í þeim „mæma“ starfsmenn hennar og viðskiptavinir við þekkt lög, viðskiptavinur í stólnum. Myndböndin eru virkilega skemmtileg og stemningin allt öðruvísi en maður á að venjast inni hjá tannlækninum.

Það er Tracy London Driver sem á heiðurinn af myndböndunum, en systir hennar Dr. Patricia London er eigandi stofunnar. Driver hefur unnið fyrir systur sína í meira en 20 ár og þegar Dr. London fól henni það verkefni að útbúa myndbönd varð Monday Bites til.

Driver hefur gert meira en 160 myndbönd og hún er í næstum öllum þeirra. Myndböndin hafa gert mikið fyrir stofuna og verið góð auglýsing, en þrátt fyrir að nafnið gefi það til kynna þá er ekkert þeirra tekið upp á mánudegi. Í myndbandinu hér fyrir neðan má sjá samansafn af því besta frá árinu 2017.

Facebooksíða Monday Bites.

A few of our all-time favorite Monday Bites! (If you have never seen one of our videos we post one every Monday on YouTube, Instagram, Twitter & Facebook). Our patients are THE BEST and have made this so much fun! ?#mondaybites #teambright #ourpatientsrock

Posted by Monday Bites on 8. janúar 2018

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Birtir nektarmyndir í skugga fjaðrafoks og skilnaðar – Eiginmaðurinn fékk nóg vegna andlegs ferðalags hennar

Birtir nektarmyndir í skugga fjaðrafoks og skilnaðar – Eiginmaðurinn fékk nóg vegna andlegs ferðalags hennar
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Varpar sprengju fyrir stórleikinn á Anfield í kvöld

Varpar sprengju fyrir stórleikinn á Anfield í kvöld
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Sakfelldur fyrir hótanir og líkamsárás inni í varahlutaverslun

Sakfelldur fyrir hótanir og líkamsárás inni í varahlutaverslun
Pressan
Fyrir 15 klukkutímum

Alræmdur fjöldamorðingi dó í fangelsi á sunnudag

Alræmdur fjöldamorðingi dó í fangelsi á sunnudag
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Er orðinn Sir David Beckham

Er orðinn Sir David Beckham
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Carragher telur að Slot verði að taka á þessu ótrúlega vandamáli

Carragher telur að Slot verði að taka á þessu ótrúlega vandamáli
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Harðneitar fyrir að hafa haldið framhjá með þessari konu á Ítalíu

Harðneitar fyrir að hafa haldið framhjá með þessari konu á Ítalíu

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.