fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024

8 leiðir til að verða betri í að sleikja píku

Ragnheiður Eiríksdóttir
Fimmtudaginn 13. september 2018 22:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þeir sem sleikja píkur eru oft mjög metnaðarfullir og vilja gera vel. Það tekst því miður ekki alltaf… og lengi má gott bæta. Hér eru átta ráð fyrir ykkur sem hafið áhuga á að verða betri í þessari mikilvægu iðju sem flestar konur elska!

Sleiktu ALLA píkuna. Ekki láta duga að hamast á snípnum. Sleiktu barmana, nárana, lærin, kviðinn. Láttu eins og píkan sé ís í brauðformi sem er að leka út um allt.

NOTAÐU tunguna. Ekki gera hana grjótharða og láta þar við sitja. Tungan er magnaður vöðvi, eða vöðvabúnt, og hægt er að breyta viðkomunni með því hvernig þeir átta vöðvar sem tilheyra henni eru notaðir. Gerðu tunguna flata og breiða, reyndu að sleikja eins mikið yfirborð og hægt er… og gerðu það aftur og aftur…

Notaðu munninn allan – tungu, tennur og varir. Kysstu, sjúgðu, nartaðu, sleiktu.

Fylgstu með viðbrögðum hennar. Stynur hún? Ýtir hún mjöðmunum á móti munni þínum? Grípur hún um hausinn á þér og þrýstir honum nær? Það eru merki um að það sem þú ert að gera sé gott.

Notaðu orðin þín. Ekki segja bara „er þetta gott?“ og ekkert meira. Notaðu orðin til að æsa hana ennþá meira. Segðu henni hvað þér finnst gott að sleikja hana, hvað þér finnst píkan hennar girnileg/falleg/dásamleg/æsandi/ilmandi. Segðu henni að það sé æsandi að finna hana verða æsta og færast í átt að fullnægingu… eða eitthvað annað sjóðheitt sem þér dettur í hug.

Vertu skapandi í stellingum. Það eru sko til fleiri stellingar en að hún liggi á bakinu og þú á milli fótanna á henni. Bjóddu henni til dæmis að setjast klofvega á andlitið á þér þegar þú liggur á bakinu (ef hún er smeyk við að kremja þig eða kæfa er ágætt að stíga með bogið hné í annan fótinn – svona eins og fótboltamaður í fremstu röð á liðsmynd). Í þeirri stellingu er líka auðveldara fyrir margar konur að fá saflát, eða skvörta, eins og það er kallað. Ef hún gerir það skaltu endilega láta hana vita hvað þér finnst safinn hennar bragðgóður. Fáðu líka að sleikja hana aftan frá, þegar hún liggur á fjórum fótum – það finnst mörgum konum undursamlega gott.

Fáðu að sleikja hana við og við í ástarleiknum. Ekki falla í formúlugryfjuna – sleikur, káf, brjóstahnoð, kynfærasleikingar, samfarir (ef annað ykkar er með tippi), svefn. Ef hún fær fullnægingu á einhverjum tímapunkti gæti henni þótt dásamlegt að láta sleikja sig blíðlega á eftir… og jafnvel gæti það fleygt henni fram af brúninni aftur.

Gerðu ýmislegt annað en að nota munninn á meðan þú sleikir hana. Notaður fingur og hendur óspart. Nuddaðu leggöngin og lærin innanverð, leiktu við geirvörturnar og strjúktu á henni maga og mjaðmir.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 10 klukkutímum

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Liverpool og Feyenoord að ganga frá smáatriðum

Liverpool og Feyenoord að ganga frá smáatriðum
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða
Fókus
Fyrir 12 klukkutímum

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista
Fókus
Fyrir 14 klukkutímum

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe
Fókus
Fyrir 16 klukkutímum

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Dregið í bikarnum – Stórleikur í Garðabænum

Dregið í bikarnum – Stórleikur í Garðabænum

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.