fbpx
Föstudagur 15.ágúst 2025

Geggjað Paleo-hafrakex

Blaka
Laugardaginn 13. maí 2017 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jæja, núna er ég búin að vera Paleo í rúmar tvær vikur og það gengur þokkalega. Ég er búin að kynnast alls konar nýjum matarréttum og lausnum ef maður vill forðast mjólkurvörur, kornmeti og hvítan sykur. Þannig að ég mæli hiklaust með að prófa mataræði sem þetta, nú eða eitthvað annað, til að hrista upp í matreiðslunni.

Baksturinn hefur verið erfiðari en matseldin þar sem ég elska fátt meira en smjör- og sykurbombur. En allt sem ég birti hér er eitthvað sem ég hef prófað og þróað og er 100% ánægð með.

Til dæmis þetta hafrakex. Með engum höfrum. Það er fáránlega einfalt að búa þetta til og þarf bara nokkur hráefni. Svo er þetta líka gott á bragðið og fullkomið millimál á tyllidögum – nú, eða bara á hverjum degi!

Geggjað Paleo-hafrakex

Hráefni

2 1/4bolli möndlumjöl

1tsk lyftiduft

1/2tsk sjávarsalt

1tsk kanill

1 Nesbú-egg

2msk hunang

Leiðbeiningar

  1. Blandið saman möndlumjöli, lyftidufti, sjávarsalti og kanil í skál og setjið til hliðar.
  2. Blandið eggi og hunangi saman í annarri skál og blandið síðan þurrefnunum saman við. Hér er gott að nota hendurnar.
  3. Setjið plastfilmu yfir skálina og inn í ísskáp í um hálftíma.
  4. Hitið ofninn í 160°C og setjið smjörpappír á ofnplötu.
  5. Fletjið deigið út, annað hvort á milli tveggja smjörpappírsarka eða með möndlumjöli.
  6. Skerið út kex með pítsaskera eða skerið út hvaða form sem er.
  7. Raðið á ofnplötuna og bakið í 12-15 mínútur. Passið ykkur því um leið og kökurnar fara að brúnast eru þær fljótar að brenna.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Mótmælendur í Alaska lýsa yfir stuðningi við Úkraínu

Mótmælendur í Alaska lýsa yfir stuðningi við Úkraínu
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Eiður Smári fór til læknis – „Sæll Eiður, ég er með bæði góðar og slæmar fréttir“

Eiður Smári fór til læknis – „Sæll Eiður, ég er með bæði góðar og slæmar fréttir“
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Eiginkona og börn Jota mæta á Anfield í kvöld – Hún birtir hjartnæma mynd

Eiginkona og börn Jota mæta á Anfield í kvöld – Hún birtir hjartnæma mynd
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

City að lána norska undrabarnið til Boro

City að lána norska undrabarnið til Boro
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Forest að kaupa öflugan leikmann frá City

Forest að kaupa öflugan leikmann frá City
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Albert leggur Gula spjaldið á hilluna og fer aftur í faðm Hjörvars

Albert leggur Gula spjaldið á hilluna og fer aftur í faðm Hjörvars
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Segir að Rashford sé með ótrúlegan umboðsmann

Segir að Rashford sé með ótrúlegan umboðsmann
Pressan
Fyrir 8 klukkutímum

Tvær af heitustu MAGA-liðunum deila harkalega – „Þú segist vera kristin en eyðileggur hjónabandið þitt eins og hóra“

Tvær af heitustu MAGA-liðunum deila harkalega – „Þú segist vera kristin en eyðileggur hjónabandið þitt eins og hóra“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.