fbpx
Miðvikudagur 05.nóvember 2025

Sagan um Ísfólkið nú fáanleg í fyrsta sinn sem hljóðbók – Þuríður Blær les

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 8. júlí 2018 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bækurnar um Ísfólkið eftir Margit Sandemo eru nú fáanlegar í fyrsta sinn sem hljóðbækur á íslensku.

Það er Storytel á Íslandi sem framleiðir þennan vinsæla sagnabálk og kynnir hann fyrir nýrri kynslóð lesenda og gefur um leið aðdáendum bókanna tækifæri á að endurnýja kynnin við Silju, Þengil og alla hina í ætt Ísfólksins á nýstárlegan hátt. Bækurnar eru alls 47 og munu allar koma út á Storytel. Fyrsta bókin, Álagafjötrar er þegar komin út og nýjar bækur munu bætast við reglulega.

Það er leikkonan, rapparinn og Reykjavíkurdóttirin Þuríður Blær Jóhannsdóttir sem les en hún las einmitt bækurnar þegar hún var fimmtán ára og hefur því að undanförnu verð að endurnýja kynnin.

Margit Sandemo er fædd í Noregi, en skrifar á sænsku og bókaflokkurinn hefur verið afar vinsæll hjá áskrifendum Storytel í Svíþjóð og víðar. Bækurnar hafa í gegnum árin notið mikilla vinsælda á Íslandi og hafa alls selst í 39 milljónum eintaka víða um heim.

Bækurnar segja söguna um ætt Ísfólksins. Það hvílir bölvun á ættinni vegna þess að ættfaðirinn, Þengill hinn illi, seldi Satani sál sína fyrir langa löngu. Í hverri kynslóð fæðist einn einstaklingur sem skal vera í þjónustu Satans. Sagan um Ísfólkið hefst svo á 16. öld þegar maður fæðist í ættinni sem reynir að snúa hinu illa til góðs. Hann er kallaður Þengill hinn góði.

Storytel opnaði á Íslandi þann 20. febrúar síðastliðinn og býður áskrifendum að streyma öllu efni þjónustunnar, sem telur yfir 30.000 hjlóð- og rafbækur á íslensku og ensku, ótakmarkað gegnum app. Áskrifendur eru komnir á sjöunda þúsund og tugir ánægðra viðskiptavina bætast við daglega.

Storytel hefur gjörbreytt landslaginu fyrir íslenskar hljóðbækur og lagt sitt á vogarskálarnar við að byggja upp löngu tímabæran markað fyrir hljóðbækur. Þannig hefur fyrirtækið framleitt nálægt hundruð hljóðbækur á íslensku en markmiðið er að framleiða 250 bækur á ári eftir íslenska höfunda.

Hljóðbækur er sú grein innan bókageirans sem vex hvað hraðast í heiminum. Áskrifendur Storytel í þeim þrettán löndum sem Storytel starfar voru 621 þúsund að meðaltali á síðasta ársfjórðungi samanborið við um 400 þúsund á öðrum ársjórðungi 2017 og áætlað er að þeir verði um 800 þúsund fyrir árslok.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 klukkutímum

Fyrsta brúðkaup í Notre Dame í þrjá áratugi – Erkibiskupinn gaf sérstakt leyfi

Fyrsta brúðkaup í Notre Dame í þrjá áratugi – Erkibiskupinn gaf sérstakt leyfi
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 klukkutímum

Thomas Möller skrifar: Þáttaröðin „Evrópa brennur“

Thomas Möller skrifar: Þáttaröðin „Evrópa brennur“
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Gengið í gegnum endurnýjun lífdaga og Manchester United íhugar nú að fá hann

Gengið í gegnum endurnýjun lífdaga og Manchester United íhugar nú að fá hann
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Ronaldo uppljóstrar um leyndarmál á bak við trúlofunina – „Þá komu börnin mín inn“

Ronaldo uppljóstrar um leyndarmál á bak við trúlofunina – „Þá komu börnin mín inn“
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Borðvél sem þýðir bók á örfáum sekúndum

Borðvél sem þýðir bók á örfáum sekúndum
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Birtir nektarmyndir í skugga fjaðrafoks og skilnaðar – Eiginmaðurinn fékk nóg vegna andlegs ferðalags hennar

Birtir nektarmyndir í skugga fjaðrafoks og skilnaðar – Eiginmaðurinn fékk nóg vegna andlegs ferðalags hennar
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Þóroddur verður við störf á leik Crystal Palace í vikunni

Þóroddur verður við störf á leik Crystal Palace í vikunni
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Stórt nafn til nýliðanna

Stórt nafn til nýliðanna