Norðlenski rapparinn Halldór Kristinn Harðarson eða KÁ/AKÁ eins og hann kallar sig sendi í gærkvöldi frá sér nýtt lag. Lagið er það fyrsta sem kemur frá kappanum á þessu ári en hann gaf út plötuna Bitastæður á síðasta ári.
Halldór sem vakti fyrst athygli með lögunum Yuri og Draugar árið 2016 segir lagið sýna aðra og nýja hlið á sér. „Hér fáið þið að heyra mjúku hliðina á mér sem birtist ekki allt of oft, en hún er til staðar. Setjið eldivið í eldstæðið, hitið ykkur kakó og farið jafnvel í sleik,“ segir Halldór um lagið
Lagið sem er unnið í samstarfi við tónlistarmanninn Togga Nolem og kom eins og áður segir út á Youtube í gær. Lagið verður svo aðgengilegt á Spotify síðar í vikunni.