fbpx
Fimmtudagur 13.nóvember 2025
Fókus

David Attenborough snýr aftur: Sjáðu magnaða stiklu úr Planet Earth 2 við tónlist Sigur Rósar

Sýningar á annarri þáttaröð Planet Earth hefjast innan skamms

Einar Þór Sigurðsson
Þriðjudaginn 11. október 2016 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áratug eftir að hinir mögnuðu dýralífsþættir Planet Earth voru frumsýndir er Sir David Attenborough að gera sig kláran fyrir aðra þáttaröð. Stikla úr Planet Earth 2 var frumsýnd í vikunni og er óhætt að segja að hún hafi vakið mikla athygli.

Þættirnir eru sem fyrr framleiddir af BBC og verður fyrsti þátturinn frumsýndur ytra síðar í þessum mánuði. Alls eru þættirnir sex talsins og er hver þeirra tæp klukkustund að lengd.

via GIPHY

Planet Earth-þættirnir hlutu einróma lof gagnrýnenda á sínum tíma og eru þeir óvíða á listum yfir bestu sjónvarpsþætti sem gerðir hafa verið. Þættirnir eru dýrustu heimildarmyndaþættir sem framleiddir hafa verið, en heildarkostnaðurinn nam tuttugu milljónum punda á sínum tíma, 2,8 milljörðum króna á núverandi gengi.

Sem fyrr verður sjónum beint að einstöku dýraríki á nokkrum af afskekktustu stöðum heims. Í einum þættinum verður til að mynda fylgst með snjóhlébarða í Hemis-þjóðgarðinum á Indlandi og í öðrum þætti verður fjölskrúðugt dýralíf Madagaskar skoðað.

Hér að neðan má sjá stiklu úr Planet Earth 2. Ekki skemmir fyrir að tónlist Sigur Rósar hljómar undir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Handtekinn sama dag og hann var tilnefndur til Grammy-verðlauna

Handtekinn sama dag og hann var tilnefndur til Grammy-verðlauna
Fókus
Fyrir 2 dögum

89 ára næringarfræðingur varpar ljósi á hvað hún borðar til að halda heilsunni góðri

89 ára næringarfræðingur varpar ljósi á hvað hún borðar til að halda heilsunni góðri
Fókus
Fyrir 3 dögum

Augnlæknar nefna það sem þeir myndu aldrei gera: „Nudda augun“

Augnlæknar nefna það sem þeir myndu aldrei gera: „Nudda augun“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Henni virðist ætlað að koma inn samviskubiti hjá mæðrum“

„Henni virðist ætlað að koma inn samviskubiti hjá mæðrum“