fbpx
Miðvikudagur 16.júlí 2025
Fókus

Simmi hefur verið öllum megin við alkóhólisma: „Ég var stjórnlaus á flestan hátt“

Íris Hauksdóttir
Fimmtudaginn 26. september 2019 20:00

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigmundur Árnason er fertugur, fjögurra barna faðir. Hann starfar sem bílasali og hefur um langa hríð unnið við akstur hinna ýmsu ökutækja. En hann er líka óvirkur fíkill og tekur því hlutverki alvarlega. Simmi, eins og hann er alltaf kallaður, á sér langa sögu og segist stoltur af fortíðinni því sögu sína nýti hann til að hjálpa öðrum.

Neyslusaga Simma hófst þegar hann var rétt rúmlega þrettán ára. Forsöguna rekur hann til uppvaxtaráranna þar sem áfengi og vímuefnaneysla léku stórt hlutverk. „Ég upplifði mikið tilfinningalegt óöryggi sem barn, sem óhjákvæmilega fylgir uppvexti í þeim viðbjóði sem ég bjó við. Ég ætlaði aldrei að snerta áfengi eða önnur vímuefni enda var ég mjög hræddur við alla vímugjafa eftir að hafa séð skuggahliðar alkóhólismans í mínum uppvexti. Að alast upp við alkóhólisma gerir mig samt ekki að þeim fíkli sem ég varð seinna, en það hjálpaði til í ljósi þess hve brotinn og skemmdur ég var sem barn,“ segir Simmi og heldur áfram.

„Allar þessar tilfinningar, kvíði, ótti við álit annarra, hræðslan við að mistakast, sífelld höfnunartilfinning og að finnast maður aldrei passa inn í hópinn, einfaldlega hvarf þegar ég drakk í fyrsta skipti og sömuleiðis þegar ég notaði hin og þessi efni í fyrsta skipti. Vímuefnin jörðuðu erfiðar tilfinningar og létu mér líða nákvæmlega eins og mig hafði alltaf langað að líða.

Ég gat í fyrsta sinn sagt hvað sem var, talað við hvern sem er, ég upplifði mig ósigrandi. Það hafði mikið gengið á á heimilinu, ítrekaðar tilraunir til að hætta, meðferðir og endalaus föll, sem endaði á því að móðir mín einfaldlega fór úr landi og skildi mig eftir ásamt bræðrum mínum.

Yngri bróðir minn slapp og er í góðum málum í dag en eldri bróðir minn náði aldrei tökum á sínum málum. Hann dvaldi í gistiskýlinu í nokkur ár en endaði svo neyslusögu sína með því að myrða mann. Í dag situr hann á réttargæsludeild Klepps. Hann byrjaði í neyslu töluvert á undan mér og því var alltaf auðvelt að nálgast efni í gegnum hann. Kannski fullauðvelt, því sautján ára var ég kominn í algjört þrot. Neyslan löngu hætt að snúast um þetta frelsi og vellíðan, kynnast stelpum og djamma. Lífið snerist bara um að nota og ekkert annað.“

Stjórnlaus þegar vímuefni voru annars vegar
Árið var 1995, Simmi var heimilis- og atvinnulaus og búinn að brjóta öll þau lögmál sem hann hafði áður einsett sér að fylgja. „Ég var farinn að neyta efna sem ég ætlaði aldrei að prófa og nota á hátt sem ég ætlaði aldrei að gera. Ég hélt þessu líferni þó til streitu næstu þrjú árin. Ég ætlaði aldrei í meðferð, enda hafði ég þá reynslu úr uppeldinu að meðferðir bæru sjaldnast árangur. Fólk sneri til baka enn verra en það fór inn, í það minnsta mitt fólk. Það var svo í september 1998 sem ég játaði mig í fyrsta sinn sigraðan og skráði mig inn á Vog. Ég hafði þá reynt að svipta mig lífi í miklum niðurtúr en mundi ekkert eftir að hafa skráð mig inn þegar þeir hringdu og tilkynntu mér að innlögnin hefði verið samþykkt. Ég ákvað engu að síður að mæta og vissi að ég hefði átt að gera þetta miklu fyrr. Ég var ákveðinn í að verða edrú og fann í fyrsta skipti örlitla von. Ég sótti svo eftirmeðferð á Vík, sem ég kláraði og gerði virkilega mitt besta. Þaðan fór ég á áfangaheimilið Takmarkið, henti dótinu mínu, sem var bara einn poki, inn á herbergi og rölti svo niður Laugaveginn þar sem ég átti fund. Á leiðinni rakst ég á gamlan neyslufélaga sem kættist mjög að sjá mig, bauð mér efni og ég datt í það. Þetta einkennir svolítið mína neyslusögu þangað til það rann loksins af mér þann 5. september árið 2009. Fram að þeim tíma var ég algjörlega stjórnlaus þegar vímuefni voru annars vegar, þrátt fyrir endalausar tilraunir til að verða edrú. Ég fór í meðferð á sirka þriggja mánaða millibili í mörg ár sem ég held að hafi haldið mér á lífi, annars væri ég ekki hér.“

Simmi upplifði skuggahliðar alkóhólismans í uppvextinum
Mynd: Eyþór Árnason

Ætlaði ekki að bregðast þessu barni

Að lokum gáfust stofnanirnar upp á Simma, ein á fætur annarri og þá voru góð ráð dýr. Simmi segist þó skilja afstöðu þeirra, enda hafi hann átt það til að falla í meðferð eða inni á áfangaheimilum. „Ég var rekinn úr meðferð fyrir þetta og hitt sem er illa séð þarna, enda var ég stjórnlaus á flestan hátt. Ég eignaðist mitt fyrsta barn í janúar árið 2004 og hafði þá verið edrú alla meðgönguna. Þá trúði ég því að þetta væri komið. Í kjölfarið upplifði ég svo allar þessar tilfinningar sem fylgja því að eignast barn, svakalega gleði og yfirþyrmandi verndunartilfinningu. Ég ætlaði sko ekki að bregðast þessu barni. Fjórum mánuðum síðar féll barnsmóðir mín og ég reyndi í örvæntingu að sannfæra sjálfan mig um að eitt fix myndi ekki skaða svo ungt barn. Ég átta mig á að heilbrigðir einstaklingar geta ekki sett sig í þessi spor eða skilið hvernig heili fíkils virkar, en svona skemmist hann og verður algjörlega háður efnum. Jafnvel þegar maður er ekki einu sinni að nota þau. Það er einmitt þegar maður er edrú og er ekki að vinna í sjálfum sér sem heilinn reynir að finna upp leiðir til að segja að einn skammtur sé skaðlaus. Svo fer auðvitað allt til fjandans um leið og maður fær sér þetta eina, því þá vill maður alls ekki hætta. Til að gera langa sögu stutta var dóttir okkar að endingu tekin af okkur þrátt fyrir að okkur hefðu verið gefin mörg tækifæri til að gera betur. Við gátum bara ekki verið edrú saman.“

Simmi barðist fyrir bata í ellefu ár – fagnar nú edrúafmæli
Mynd: Eyþór Árnason

Ófrísk í fangelsi, eitt barn í fóstri og annað á leiðinni
Þrátt fyrir að neyslusaga Simma sé lengri segir hann að hér hafi orðið ákveðin þáttaskil.
„Árið 2008 fór barnsmóðir mín í fangelsi. Þar kom í ljós að hún var aftur orðin ófrísk og ástandið á mér var vægast sagt mjög slæmt. Ég var að nota meira en ég hafði nokkurn tímann gert af mjög sterkum ópíumlyfjum ásamt örvandi efnum og varð rosalega veikur ef langt leið á milli skammta. Með eitt barn í fóstri og annað á leiðinni, sem ekkert útlit var fyrir að við fengjum að halda og yrði tekið strax við fæðingu, ákvað ég að snúa blaðinu endanlega við,“ segir Simmi og við tók enn ein meðferðin. Þessi var hins vegar, sem betur fer, frábrugðin hinum.

„Þarna um haustið fór ég í mína síðustu meðferð á Vogi og á Staðarfell. Í þessari meðferð gerðist eitthvað. Með aðstoð ráðgjafa setti ég niður á blað plan um hvernig ég ætlaði að komast edrú út í lífið og hvernig ég ætlaði að takast á við það að eignast barn tveimur mánuðum eftir útskrift. Eins þurfti ég að hugsa til þess hvernig ég tæki því ef barnið yrði tekið af mér, en það sem mestu máli skipti var hvernig ég myndi tækla það ef barnsmóðir mín yrði ekki edrú. Yngri dóttir okkar kom í heiminn í desember og mér til óvæntrar ánægju var mér leyft að taka hana heim. Ég varð svo sannfærður um að hún yrði tekin af okkur.“

Í kjölfarið dundi annað áfall yfir í lífi Simma, sem reyndi á staðfestu hans.

„Örfáum vikum síðar féll barnsmóðir mín og þá reyndi á að fylgja planinu sem ég hafði gert, einfaldlega til þess að eiga möguleika á að halda dóttur minni hjá mér. Það var ekki sjálfsagt og ég þurfti svo sannarlega að berjast fyrir henni. Hún var að vísu tekin tímabundin af mér vegna sögu minnar og það reyndist mér erfitt en ég valdi að berjast fyrir barninu mínu. Ég flutti í kjölfarið í kjallaraíbúð á vistheimili barnaverndarnefndar og bjó þar í hálft ár. Þar fékk ég þann stuðning sem ég þurfti til að komast út í lífið með hana, en ég var varanlega sviptur forsjá eldri stelpunnar. Mamma þeirra náði sér aldrei á beinu brautina, en hún lést árið 2013 og tók því miður aldrei þátt í lífi dætra okkar. En svona er þessi sjúkdómur. Hann tekur og tekur ef fólk hleypir honum að og hugsar ekki um batann sinn.“

Sjúkdómurinn umbreytir fólki í andstæðu sína
Sama ár kynntist Simmi annarri konu og eiga þau saman tvö börn.

„Hún var svakalega heilsteypt stelpa og í raun algjör draumadís. Tók stelpunni minni sem sinni eigin og gekk henni algerlega í móðurstað. Við byggðum saman frábært líf í tíu ár þar sem hún menntaði sig, við eignuðumst börn og komum okkur fyrir í fallegri íbúð. Hennar sjúkdómur fór að láta á sér kræla fyrir sirka þremur árum og hefur ágerst síðan. Í dag býr hún ekki á heimilinu og ekki útlit fyrir neinar breytingar þar á. Sjúkdómurinn tók hana og hún er ekki í neinum samskiptum við okkur, því miður. Það er þetta sem sjúkdómurinn gerir. Hann umbreytir fólki í andstæðu sína og á margan hátt er saga mín að endurtaka sig. Ég er einstæður faðir með þrjú börn á heimilinu en ég hef komist að því í gegnum mína sögu að þrátt fyrir það hversu djúpt ég sökk í neyslu og hvað sem gengur á í mínu lífi þá þarf ég ekki að nota. Það er kraftaverk sem ég veit að ekki allir skilja, en það var sama hvort dagurinn var góður eða slæmur, jól eða páskar, ég þurfti alltaf að nota.“

Tíu ár edrú
Eftir að hafa barist fyrir bata í ellefu ár fagnar Simmi nú tíu ára edrúafmæli. Honum er mikið í mun að miðla þeim skilaboðum áfram til þeirra sem standa í svipuðu sporum, að það sé von og allir eigi möguleika á að bæta úr sínum málum.

„Þeim sem sjá ekkert bjart framundan vil ég segja að það er einmitt á þeim tímapunkti sem fólk á séns. Ég þurfti að komast á þann stað að skilja að hvort ég átti efni eða ekki, pening eða húsaskjól, það skipti ekki máli. Ég varð að finna örvæntinguna og fylgja leiðsögn þeirra sem náð hafa árangri. Alkóhólismi var búinn að rassskella mig sundur og saman í tvo áratugi, niðurlægja mig á allan mögulegan hátt og gera mig að þeim manni sem ég ætlaði aldrei að verða. Ég hef verið öllum megin við þennan sjúkdóm og upplifað allt sem hann hefur upp á að bjóða,“ segir Simmi og heldur áfram.

„Það gekk mikið á á mínu heimili, mikið partístand, ofbeldi og vesen. Það sem skiptir máli er að komast frá því og leggja það ekki á sín börn, rjúfa hringrásina. Ég hef verið makinn, eiginmaðurinn og meðuppalandinn og hlustað á lygarnar sem fíkillinn segir. Ég hef haldið í vonina og viljað gera allt til að þurfa ekki að horfa upp á eyðilegginguna sem fólk fer í gegnum og leggur á fjölskyldu sína, börnin sín. Ég hef líka fallið í meðvirkni, en í dag veit ég að maður hefur ekki stjórn á gjörðum annarra.“

Simmi er ekki í vafa þegar hann er spurður hvað hafi verið erfiðast að standa frammi fyrir á þessari vegferð.

„Af öllu því sem ég hef gengið í gegnum hefur mér reynst erfiðast að vera meðuppalandinn og horfa upp á börnin mín upplifa sama óöryggið og ég gerði sjálfur. Þau eru að fara í gegnum sama sjálfsásökunarpakkann og ég gerði í þeirra sporum en á sama tíma get ég ekkert gert til að lina þeirra sársauka. Mér er auðvitað mest í mun að börnin feti ekki sömu slóð og ég sjálfur, því ég veit manna best hvað það er sem togar krakka í þessa átt. Lélegt sjálfsmat, kvíði, ótti og upplifunin að passa ekki inn í hópinn. Þetta eru tilfinningarnar sem krakkarnir eru að reyna að slökkva á og deyfa, rétt eins og ég gerði sjálfur á sínum tíma. Félagsskapurinn skiptir sköpum þegar komið er á unglingsárin og það að byggja upp sterka sjálfsmynd. Það er til lausn á fíknivandanum, sama hversu djúpt viðkomandi er sokkinn og sama hvað hverju hefur klúðrað og misst. Það er alltaf leið út ef fólk vill hjálpina og er tilbúið að leggja á sig vinnuna. Allir eiga séns og ég hef séð það í ótal andlitum á öðrum kraftaverkum sem ég hitti í hverri viku, brosandi út að eyrum, full af lífi og hamingju.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Grill- og tónlistarhátíðin Kótelettan fór fram í blíðskaparveðri

Grill- og tónlistarhátíðin Kótelettan fór fram í blíðskaparveðri
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sambandsráðgjafi: Fjögur merki um að sambandið sé dauðadæmt

Sambandsráðgjafi: Fjögur merki um að sambandið sé dauðadæmt
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Það komu upp alls konar tilfinningar en mest fann ég fyrir stolti og gleði“

„Það komu upp alls konar tilfinningar en mest fann ég fyrir stolti og gleði“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Kynlífsráðgjafi með 45 ára reynslu: Þetta er helsta ástæða framhjáhalds

Kynlífsráðgjafi með 45 ára reynslu: Þetta er helsta ástæða framhjáhalds
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hafði þetta að segja um hjónabandið fjórum mánuðum áður en eiginmaðurinn sótti um skilnað

Hafði þetta að segja um hjónabandið fjórum mánuðum áður en eiginmaðurinn sótti um skilnað
Fókus
Fyrir 4 dögum

Þórunn Antonía rifjar upp harmsögu strippara á Óðal í skugga mansalsrassíu

Þórunn Antonía rifjar upp harmsögu strippara á Óðal í skugga mansalsrassíu