Nýlega opnaði Einar Falur Ingólfsson sýninguna „Landsýn – Í fótspor Johannesar Larsen“ í aðalsal Hafnarborgar. Sýningin samanstendur af ljósmyndum Einars Fals Ingólfssonar og teikningum Johannesar Larsen.
Meginstef sýningarinnar er tíminn sjálfur, tími landsins og mannanna. Ljósmyndir Einars fjalla fyrst og fremst um samtímann þó að samtímis kallist þær á við tíma Íslendingasagna og tíma Larsen á Íslandi. Ljósmyndaverk Einars geta vissulega staðið stök og sjálfstæð en undirstaða sýningarinnar er þó samtal Einars við teikningar Larsen.
Margir góðir gestir mættu við opnun sýningarinnar, en hún stendur yfir til 20. ágúst.
Menningarþrenna Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður og myndlistarmennirnir Helgi Þorgils Friðjónsson og Steingrímur Eyfjörð.
Fjögurra stráka spjall Ljósmyndarar ræða landsins gagn og nauðsynjar.
Menningarmæðgur Listakonan Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir og dóttir hennar, Andrea Magdalena Jónsdóttir, voru ánægðar með sýninguna.
Tengdamamma leit við Gunnlaug Eggertsdóttir, tengdamóðir Einars Fals, og Salvör Nordal, framkvæmdastjóri Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands.
Saman í listum Eiginkonan Ingibjörg Jóhannsdóttir, skólastjóri Landakotsskóla og myndlistarkona, var ánægð með sýninguna. Þau hjónin eru bæði listræn.
Góðir gestir Ættingjar og vinir mættu og fögnuðu opnun með Einari. Gunnlaug, tengdamóðir Einars Fals, mætti með falleg sumarblóm.
Ljósmyndarakvartett Ljósmyndararnir Spessi Hallbjörnsson, Ívar Brynjólfsson, Guðmundur Ingólfsson og Bragi Þór Jósepsson.