fbpx
Laugardagur 08.nóvember 2025
Fókus

Blúsinn ómaði á Skólavörðustíg

Blúshátíð hófst um síðustu helgi og bærinn iðaði af lífi

Ritstjórn DV
Föstudaginn 25. mars 2016 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Blúshátíð var sett í Reykjavík þann 19. mars og var mikið líf og fjör í miðbænum af því tilefni. Blúsinn ómaði á Skólavörðustíg á meðan vegfarendur gæddu sér á pylsum, sýndu sig og sáu aðra. Þekktir blúsarar létu sig að sjálfsögðu ekki vanta. Hátíðin stendur yfir til 25. mars og ættu blúsunnendur og aðrir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi á öllum þeim viðburðum sem boðið er upp á í tengslum við hátíðina.

Halldór Bragason, listrænn stjórnandi Blúshátíðar, Chicago Beau og Eggert feldskeri tóku sig vel út á Skólavörðustígnum.
Þrír góðir Halldór Bragason, listrænn stjórnandi Blúshátíðar, Chicago Beau og Eggert feldskeri tóku sig vel út á Skólavörðustígnum.

Blúsdrottningin Andrea Gylfadóttir og Guðrún Ögmundsdóttir nutu ljúfra tóna í miðborginni.
Glæsilegar Blúsdrottningin Andrea Gylfadóttir og Guðrún Ögmundsdóttir nutu ljúfra tóna í miðborginni.

Magnús Ingi Magnússon, betur þekktur sem Texas-Maggi á veitingastaðnum Texasborgurum, lét sig ekki vanta í blúsinn.
Texasblús Magnús Ingi Magnússon, betur þekktur sem Texas-Maggi á veitingastaðnum Texasborgurum, lét sig ekki vanta í blúsinn.

Birna Þórðardóttir stóð vaktina við pönnuna og steikti pylsur eins og hún hefði aldrei gert annað.
Pylsupartí Birna Þórðardóttir stóð vaktina við pönnuna og steikti pylsur eins og hún hefði aldrei gert annað.

Eggert Feldskeri greip í gítarinn og tók lagið að vanda.
Meiri blús Eggert Feldskeri greip í gítarinn og tók lagið að vanda.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Segir typpastærð fyrrum NFL-leikmannsins hafa verið banabiti hjónabandsins

Segir typpastærð fyrrum NFL-leikmannsins hafa verið banabiti hjónabandsins
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hrauna yfir All´s Fair – Sögð vera versta sjónvarpsþáttaröðin

Hrauna yfir All´s Fair – Sögð vera versta sjónvarpsþáttaröðin
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Við eigum aldrei að slaufa fólki fyrir skoðanir sínar og allra síst á ríkið að vera að stjórna því hvaða tjáning er leyfileg“

„Við eigum aldrei að slaufa fólki fyrir skoðanir sínar og allra síst á ríkið að vera að stjórna því hvaða tjáning er leyfileg“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Bókakonfekt Forlagsins hefst í kvöld

Bókakonfekt Forlagsins hefst í kvöld
Fókus
Fyrir 3 dögum

Simone Biles hefur gengist undir þrjár lýtaaðgerðir – „Þú gætir aldrei giskað á tvær þeirra“

Simone Biles hefur gengist undir þrjár lýtaaðgerðir – „Þú gætir aldrei giskað á tvær þeirra“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Konan byrjaði að halda framhjá eftir swing-partý – Svo versnaði það

Konan byrjaði að halda framhjá eftir swing-partý – Svo versnaði það