fbpx
Þriðjudagur 24.mars 2026
Fókus

Nýja kærastan er meira en tuttugu árum yngri

Fókus
Þriðjudaginn 24. mars 2026 09:02

Luisa starfar sem fyrirsæta. Mynd: Instagram/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikarinn og hjartaknúsarinn Orlando Bloom er sagður vera kominn í nýtt ástarsamband eftir að hann og tónlistarkonan Katy Perry slitu níu ára sambandi sínu á síðasta ári.

Samkvæmt erlendum miðlum hefur Bloom undanfarna mánuði verið að hitta svissnesku fyrirsætuna Luisu Laemmel. Bloom er 49 ára en Luisa 28 ára og er því 21 árs aldursmunur á parinu.

Bloom og Katy Perry eiga saman fimm ára dóttur, Daisy, en eins og fram hefur komið er Katy nú í sambandi með kanadíska stjórnmálamanninum Justin Trudeau.

Bloom og Laemmel vöktu nýlega athygli þegar þau eyddu nokkrum dögum saman í Sviss. Eru þau meðal annars sögð hafa gist í lúxussvítu á hinu virta Dolder Grand hóteli í Zürich, þar sem nóttin getur kostað allt að tvær milljónir króna. Á sama tíma sótti Bloom kynningarviðburð fyrir bílaframleiðandann Porsche.

Eftir dvölina í Zürich er talið að parið hafi eytt helgi á fimm stjörnu Bürgenstock-hótelinu við Luzerne-vatn. Í ferðinni er Bloom einnig sagður hafa hitt vini og fjölskyldu Laemmel.

Heimildarmaður sagði við breska blaðið The Sun að sambandið hefði þróast jafnt og þétt:

„Orlando og Luisa hafa verið að hittast í rólegheitum í nokkra mánuði. Þau eru farin að mynda litla fjölskyldueiningu og Orlando flaug meira að segja með púðluhundinn sinn, Biggie Smalls, í ferðina.“

Sama heimild bætti við að fjarlægðin á milli þeirra gæti þó sett strik í reikninginn. „Hann er með aðsetur í Los Angeles en hún í New York, svo þau eru ekki alltaf saman, en eru stöðugt í sambandi og það er greinilega neisti á milli þeirra.“

Luisa starfar sem fyrirsæta og hefur meðal annars setið fyrir hjá tískurisanum Calvin Klein.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Piparjónkudramað heldur áfram – Vonbiðill og meintur sigurvegari stígur fram

Piparjónkudramað heldur áfram – Vonbiðill og meintur sigurvegari stígur fram
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sóðaleg leyndarmál búningsherbergisins afhjúpuð – Vinsæll á skjánum en hrotti utan hans

Sóðaleg leyndarmál búningsherbergisins afhjúpuð – Vinsæll á skjánum en hrotti utan hans
Fókus
Fyrir 5 dögum

Uma Thurman afhjúpar af hverju hún bjó aldrei í Hollywood

Uma Thurman afhjúpar af hverju hún bjó aldrei í Hollywood
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hægt strandarhlaup í aðskornum eldrauðum sundfatnaði snýr aftur á skjáinn – Þetta er nýr leikarahópur Baywatch

Hægt strandarhlaup í aðskornum eldrauðum sundfatnaði snýr aftur á skjáinn – Þetta er nýr leikarahópur Baywatch