fbpx
Mánudagur 23.mars 2026
Fókus

Hjón gátu ekki eignast barn þrátt fyrir tilraunir í fjögur ár – Kom í ljós að konan var enn hrein mey

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 23. mars 2026 15:30

Lækninum fannst þetta vægast sagt undarlegt. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kínversk hjón leituðu til læknis eftir fjögurra ára árangurslausar tilraunir til að eignast barn. Lækninum brá í brún þegar hann skoðaði konuna og komst að því að hún var enn þá hrein mey.

Dagblaðið Guiyang Evening Post greinir frá þessu.

Hjónin eru ekki nafngreind í fréttinni en þau eru ung, hann 26 ára og hún 24 ára gömul, frá borginni Bije í suðurhluta landsins. Þau höfðu stundað kynlíf af miklum móð í fjögur ár og vildu eignast barn. En það gekki ekki neitt og loks leituðu þau til læknis til þess að reyna að fá skýringar og lækningu við ófrjósemi sinni.

En lækninum, Liu Hongmei, brá nú heldur betur í brún þegar hann skoðaði konuna og komst að því að hún var enn þá hrein mey.

„Þau eru mjög heilbrigð en þrátt fyrir að vera gift í fjögur ár hafa þau ekki getað eignast barn,“ sagði Hongmei. „Það var mjög mikill þrýstingur frá fjölskyldunni þeirra út af þessu.“

Sársaukafullt kynlíf

Spurði hann hana um kynlífið og viðurkenndi hún að það væri henni ekkert sérstaklega gott, eiginlega bara sársaukafullt í hvert skipti. En hún hélt áfram í von um að það myndi glæðast líf í kvið hennar.

Fannst lækninum þetta allt hið undarlegasta og ákvað að skoða konuna betur, þar á meðal endaþarm hennar. Fljótlega kom hið sanna í ljós, það er að hjónin ungu höfðu ekki fengið nægilega góða kynfræðslu. Höfðu þau verið að stunda endaþarmsmök í allan þennan tíma sem vitaskuld getur ekki af sér líf.

Virkaði

Voru hjónin kvödd af læknastofunni með leiðbeiningum um hvernig ætti að stunda kynlíf til þess að geta barn. Einnig fengu þau kynlífsfræðslubók að gjöf.

Og viti menn. Í lok fréttarinnar er greint frá því að þetta hafi virkað sem skyldi. Ekki liðu nema örfáir mánuðir og konan var orðin barnshafandi. Til að þakka lækni sínum gáfu þau honum lifandi hænu og 100 egg.

„Það er sjaldgæft að finna pör sem vita svona lítið um getnað,“ sagði Hongmei. „En það er ekki sjaldgæft að pörum skorti kynfræðslu.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Sóðaleg leyndarmál búningsherbergisins afhjúpuð – Vinsæll á skjánum en hrotti utan hans

Sóðaleg leyndarmál búningsherbergisins afhjúpuð – Vinsæll á skjánum en hrotti utan hans
Fókus
Fyrir 3 dögum

Stórstjarna nær óþekkjanleg á tökustað nýrrar sálfræðispennumyndar

Stórstjarna nær óþekkjanleg á tökustað nýrrar sálfræðispennumyndar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hægt strandarhlaup í aðskornum eldrauðum sundfatnaði snýr aftur á skjáinn – Þetta er nýr leikarahópur Baywatch

Hægt strandarhlaup í aðskornum eldrauðum sundfatnaði snýr aftur á skjáinn – Þetta er nýr leikarahópur Baywatch
Fókus
Fyrir 4 dögum

Keith Urban sagður í áfalli yfir meintu daðri Nicole Kidman við mótleikara sinn

Keith Urban sagður í áfalli yfir meintu daðri Nicole Kidman við mótleikara sinn
Fókus
Fyrir 5 dögum

Glímdu við óútskýrða ófrjósemi en svo gaf læknir þeim ráð sem breytti öllu

Glímdu við óútskýrða ófrjósemi en svo gaf læknir þeim ráð sem breytti öllu
Fókus
Fyrir 6 dögum

Rokkstjarnan bað unnustunnar svamlandi með risastórum hákörlum

Rokkstjarnan bað unnustunnar svamlandi með risastórum hákörlum