fbpx
Miðvikudagur 25.mars 2026
Fókus

Katrín Edda lýsir kaósinu við fasteignakaupin – „Þetta var algjört, en bara týpísk ég“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 25. mars 2026 14:30

Katrín Edda Þorsteinsdóttir. Mynd: Instagram.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Katrín Edda Þorsteinsdóttir, vélaverkfræðingur hefur búið í Þýskalandi í 14 ár, en þangað flutti hún upphaflega til að fara í nám. Í ár eru miklar breytingar framundan og hún er að flytja heim ásamt Markúsi Wass­er­baech eiginmanni sínum og tveimur börnum þeirra, Elísu Eyþóru og Aroni.

Katrín Edda hefur deilt með fylgjendum sínum á Instagram fyrirhuguðun flutningum og leit hjónanna að framtíðarheimili fjölskyldunnar. Hjónin tóku ákvörðun um að bjóða í hús í Hveragerði.

Sjá einnig: Katrín Edda flytur heim eftir 14 ár erlendis – Fer yfir stöðuna, hvar þau ætla að búa og hvers vegna

Húsið er í leigu og leigjendurnir eru að byggja sér hús í Hveragerði og óskuðu eftir að leigja áfram þar til sumarið 2026.

„Þetta var fullkomið fyrir utan að ég var í húsbílaferðalagi með Markúsi og börnunum okkar, brúðkaupi hjá vinkonu, að tala við bankann, ræða við tvö mismunandi fasteignasala, sækja um lán og greiðslumat. Redda öllu í kringum þetta, þetta var náttúrulega algjör kaos. Ég veit ekki hvort þið sáuð hvað var mikið að gera hjá mér í síðustu Íslandsferð.“

Katrín Edda seldi íbúð sem hún átti í Stigahlíð í Reykjavík.

„Fyrst þurfti ég að finna fasteignasala, haldið þið að ég þekki bara einhvern fasteignasala? Í húsbílaferðalagi úti á landi þurfti ég að redda fasteignasala.“

Þar sem að Markús eiginmaður Katrínar Eddu er þjóðverji þurfti líka að útvega honum íslenska kennitölu og rafræn skilríki.

„Af því hann er útlendingur að kaupa fasteign. Þetta var algjört, en bara týpísk ég. Long story short, þá keyptum við parhúsið í Hveragerði.“

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Katrin Edda (@katrinedda)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Ástin kulnuð í kjölfar föðurmissis

Ástin kulnuð í kjölfar föðurmissis
Fókus
Í gær

„Fókusinn á það hvað er að gerast í næsta húsi, hvort sem að það var að einhver væri orðinn ríkur eða einhver væri kominn í ræsið“

„Fókusinn á það hvað er að gerast í næsta húsi, hvort sem að það var að einhver væri orðinn ríkur eða einhver væri kominn í ræsið“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tvífari Jeffrey Epstein neyðist til að stíga fram og leiðrétta útbreiddan misskilning

Tvífari Jeffrey Epstein neyðist til að stíga fram og leiðrétta útbreiddan misskilning
Fókus
Fyrir 2 dögum

Upptaka úr búkmyndavél sýnir hvernig söngvarinn reyndi neyðarlega að koma því til skila að hann væri frægur

Upptaka úr búkmyndavél sýnir hvernig söngvarinn reyndi neyðarlega að koma því til skila að hann væri frægur